Ferðaskrifstofan Visitor hefur um ellefu ára skeið skipulagt árshátíðar- og hópaferðir fyrir fyrirtæki og minni hópa með góðum árangri. Visitor býður einnig upp á allskyns tónleika- og fótboltaferðir ásamt því að skipuleggja æfingaferðir fyrir íþróttahópa.
Kíktu í spennandi árshátíðarferð
Meðal þess sem Visitor býður upp á eru hinar vinsælu árshátíðarferðirnar, en þar gera fyrirtæki sér dagamun og fara í helgarferð saman. „Mikið er um að hópar séu að velja sér þriggja til fjögra nátta ferðir þar sem flugtíminn er ekki mikið meira en 4 klukkustundir.“ Segir Guðrún St. Svavarsdóttir, verkefnastjóri hópadeildar hjá Visitor. „Vinsælustu árshátíðarferðir síðustu ára hafa verið til Berlínar, Brighton, Dublinar og Barcelona, en þess má geta að að Varsjá, Gdansk og Budapest hafa einnig verið vinsælar.“ segir Guðrún. Visitor getur auk þess útvegað leiguflug fyrir stóra hópa til hinna ýmsu áfangastaða.
Í árshátíðarferðunum býður Visitor uppá að sjá um allan pakkann fyrir hópinn, bóka flug, hótel, ferðir til og frá flugvelli, skipuleggja árshátíðarkvöldið, útvega skemmtikrafta, tónlistarfólk, skoðunarferðir og annað sem hópurinn þarfnast. Með stærri hópum fylgir starfsmaður Visitor með í ferðina til að vera hópnum innan handar.
Mælt er með að bóka með góðum fyrirvara, þar sem framboð af flugsætum hefur minnkað og þá skiptir máli að huga sem fyrst að bókun. Nú er tími til að bóka árshátíðarferðir og hópferðir fyrir vorið og haustið þar sem margar dagsetningar eru þegar orðnar vel bókaðar.
Ýmsar aðrir möguleikar í boði
Fótboltaferðir eru alltaf vinsælar og er þegar orðið uppselt hjá þeim á marga leiki. Flestar fótboltaferðirnar eru á leiki með Manchester United, Liverpool og Arsenal, en Visitor gerði einmitt nýverið samning við Arsenal klúbbinn á Íslandi og munu þau sjá um ferðir á leiki Arsenal í samstarfi við Arsenal klúbbinn á Íslandi. Stuðningsmenn þeirra hafa því gott aðgengi að ferðum á Emirates- leikvanginn. Í ferðum á leiki í enskudeildinni er íslensk fararstjórn.
Tónleikaferðir
Tónleikaferðir hafa alltaf verið vinsælar og seljast þær alltaf hratt upp. Á döfinni má nefna tónleika með Cher í Berlín í september sem þegar er oðrin uppseld, Michael Bublé í Kaupmannahöfn í október, þar sem nokkrir miðar eru enn lausir. Svo er árið endað með ferð á tónleika Rod Stewart í Manchester sem þegar er orðin uppseld, en bætt hefur verið við aukaferð sem selst hratt.
Frekari upplýsingar um ferðirnar má finna á www.visitor.is og til að bóka ferðir er best er að senda okkur tölvupóst á hopar@visitor.is