fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Bjórböðin á Árskógssandi – Frumleg og skemmtileg gjöf í jólapakkann

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 24. nóvember 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjórböðin á Árskógssandi eru einstök heilsulind og þau einu sinnar tegundar hér á Íslandi og sömuleiðis á hinum Norðurlöndunum. Böðin voru opnuð 2017, en höfðu þá lengi verið draumur Agnesar Önnu Sigurðardóttur eftir að hún heimsótti slíkt bað í Tékklandi árið 2008 ásamt eiginmanni sínum, Ólafi Þresti Ólafssyni. Þarna var bruggsmiðja þeirra hjóna, Kaldi orðin tveggja ára.

Bjórinn góður fyrir húð, hár og neglur

Undirbúningsvinna hófst 2014 og voru Bjórböðin opnuð árið 2017 með pomp og prakt. Þar er einnig veitingastaður og útipottar sem hafa notið mikilla vinsælda vegna útsýnis yfir hafið. „Í bjórbaði baðar maður sig í ungum bjór, lifandi bjórgeri, humlum, vatni, bjórolíu og bjórsalti. Gerið í bjórnum er stútfullt af B-vítamínum, sem eru einstaklega góð fyrir húð, hár og neglur. Einnig er töluvert af prótínum, kalíumi, járni, sinki og magnesíum. Bjórinn sem við notum í er á þeim stað í ferlinu að hann hefur lágt pH-gildi og hefur þar af leiðandi stinnandi og mýkjandi áhrif á húð og hár. Humlarnir sem eru notaðir í böðin hafa mjög góð áhrif á líkamann þar sem þeir eru ríkir af andoxunarefnum og alfasýrum. Olíurnar og örefnin úr plöntunni hafa bólgueyðandi áhrif og eru einnig notuð til að minnka roða í húð og hafa góð áhrif á æðakerfið. Það er líka sannað að humlar hafa slakandi áhrif á vöðva og líkama. Bjórböðin eru undursamleg heilsulind og húðin verður eins og silki,“ segir Ragnheiður Ýr Guðjónsdóttir, tengdadóttir Agnesar og Ólafs, sem á fyrirtækið með þeim ásamt eiginmanni sínum, syni þeirra, Sigurði Braga Ólafssyni.

Slakaðu á í ungum bjór

Innifalið í baðgjaldinu er sloppur og handklæði. Mælt er með að komið sé tímanlega og farið í útipottana áður en farið er í bjórbaðið. Sjö ker eru á staðnum og er hvert þeirra einkaherbergi, þannig að gestir eru alveg í næði. „Hvert ker er tveggja manna. Hitastigið er 39–40 gráður, ef fólk vill hafa kaldara eða heitara, þá er hægt að óska eftir því. Eftir baðið er slakað á í 25 mínútur í sérstöku slökunarherbergi sem er teppalagt og allt mjög notalegt. Við mælum með að sturtu sé sleppt í 3–4 klukkustundir eftir bað, þannig að bjórinn geri það sem hann á að gera. Þú verður ekki klístraður eða angandi af bjór á eftir, fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af því, maður er sléttur og mjúkur á eftir.“

Baðið er fyrir alla en hins vegar er 20 ára aldurstakmark, eins og lög gera ráð fyrir, í að neyta bjórsins. Bjórinn í bjórböðunum er 3–5 daga gamall og því ekki orðinn áfengur og því öllum óhætt að fara ofan í. Bjórböðin hafa verið vel sótt bæði af heimamönnum og ferðamönnum. „Við erum með nokkra fastagesti, sem dæmi má nefna hjón sem hafa komið nokkrum sinnum til okkar, en eiginmaðurinn er með psoriasis og honum finnst böðin hjálpa sér. Við fáum gríðarlega mikið af hópum til okkar og eru starfsmannahópar sérstaklega vinsælir.“ Bjórböðin eru einstök heilsulind, en eftir því sem Ragnheiður veit best eru böðin þau einu á Norðurlöndum. „Það koma margir Danir, Norðmenn og Þjóðverjar, og þeir síðasttöldu hafa flestir aldrei heyrt um þetta, þrátt fyrir að böðin séu vinsælust í Tékklandi.“

 

Gjafabréf, sápur og fleira í jólapakkann

Gjafabréf í bjórböðin eru tilvalin gjafahugmynd í jólapakkann fyrir þá sem elska að upplifa eitthvað skemmtilegt og öðruvísi. Gisting er ekki í boði á staðnum, en í nágrenninu er fjöldi gistimöguleika og leiðbeina eigendur Bjórbaðanna gestum um það. Flestir bjóða þeir upp á akstur fram og til baka. „Gjafabréfin má einnig nýta í þær fjölmörgu vörur sem við bjóðum upp á. Að auki bjóðum við upp á gjafapakka fyrir jólin. Þá eigum við bjórsalt og bjórolíur, þær sömu og við notum í bjórböðin. Þetta tvennt gefur góða lykt í baðið heima og hefur mýkjandi áhrif á húðina. Einnig eigum við bjórsápur, sjampó, hárnæringu og fleira. Svona gjafakörfur eru til dæmis mjög vinsælar í fyrirtækjagjafir.“

Allar upplýsingar má fá í síma 414-2828, netfanginu  bjorbodin@bjorbodin.is og á heimasíðunni: bjorbodin.is.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum