fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Hnappurinn er partur af mínu lífi

Kynning
Hildur Hlín Jónsdóttir
Laugardaginn 16. nóvember 2019 14:00

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elsa Einarsdóttir, sölustjóri Securitas, heimsótti hnappþega fyrir stuttu til að forvitnast um upplifun af notkun öryggishnappi Securitas. Hulda tók vel á móti okkur í fallegri íbúð sinni vestur í bæ. Hún flutti fyrir þremur árum til Íslands eftir meira en 50 ára búsetu í Bandaríkjunum. Hún hefur verið með öryggishnapp frá Securitas alveg frá fyrsta degi á Íslandi. Hún segir sjálf að hnappurinn sé partur af hennar lífi og að hann muni tilheyra henni alla tíð. Hún skilur hann ekki við sig nema á næturnar, en þá er hann alltaf innan seilingar og þurfi hún að fara á stjá á nóttunni setur hún hann á sig. Ástæða þess að hún fékk sér hnapp eru afleiðingar heilablóðfalls sem hún fékk stuttu áður en hún flutti til Íslands. Hún segist hafa frétt af öryggishnappnum frá vinum og áleit strax að með slíkt hjálpartæki yrði hún öruggari á heimili sínu. Það hefur reynst raunin, frá því að hún fékk hnappinn hefur hún einu sinni þurft á aðstoð að halda. „Ég fékk skyndilega mjög hraðan hjartslátt sem ég fann að ekki var eðlilegt. Ég studdi á hnappinn og mér var svarað strax og fyrr en varði voru komnir tveir öryggisverðir til mín mér til aðstoðar. Þeir voru alveg dásamlega hjálpsamir og nærgætnir. Þeir kölluðu til sjúkrabíl og ég var á sjúkrahúsi í sólarhring á meðan að ég jafnaði mig“ segir Hulda. „Ég varð strax rólegri um leið og þeir voru komnir heim til mín, þeir gátu gefið sjúkraflutningamönnum upplýsingar um mig og sjúkdóm minn, þannig að strax var vitað til hvaða aðgerða ætti að grípa.“ Hún segir að það sé mjög traustvekjandi að vita af því að hjálpin sé skammt undan og að þeir sem veiti aðstoðina séu til þess bærir, hafi þekkingu og færni til þess. Hún er ákveðin í því að öryggishnapp Securitas muni hún vera með um hálsinn svo lengi sem þess sé þörf.

Mynd: Eyþór Árnason

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hulda er eldri dama sem nýtur lífsins, spilar á og kennir sambýlingum sínum á úkúlele og að mála vatnslitamyndir. Hún þakkar gott líf sitt léttleika, glaðværð og sinni trú sem er trúin á sjálfan sig, á hið góða í manninum.  Hún vísar til skáldsins Steingríms Thorsteinssonar og segir „Trúðu á tvennt í heimi, tign sem æðsta ber, Guð í aleims geimi, Guð í sjálfum þér.“

Mynd: Eyþór Árnason

 

 

 

 

 

 

Hvers vegna Securitas sem þjónustuaðili:

Elsa hitti dóttur hnappþega í spjalli um reynsluna af öryggishappnum. Mamma hennar flutti í Fannborg í Kópavogi fyrir fjórum árum eftir lát maka síns. Þá var hún 85 ára, mjög ern og hress, hafði séð um eiginmann sinn alla tíð og sinnt honum fram á síðasta dag. Hún er af kynslóð sem er alin upp með nægjusemi og  lítilæti að leiðarljosi, ásamt  því að bjarga sér sjálf. Því fannst henni ótækt að vera að fá aðstoð við t.d. heimilisstörf eða annað sem viðkom heimilishaldi. Fjölskylda hennar hafði rætt um að það gæti gagnast henni að vera með öryggishnapp en hún var ekki á þeim buxunum. Eftir að sonur hennar kom að móður sinni liggjandi ósjálfbjarga á gólfinu eftir slæma byltu þá féllst hún á að fá öryggishnappinn. Sótt var um niðurgreiðslu á hnappnum til Sjúkratrygginga Íslands, og Securitas var valið sem þjónustuaðili. Valið var ekki erfitt fyrir fjölskylduna, vitneskja var um góða þjónustu Securitas við hnappþega, mikla alúð og fagmennsku. Fjölskyldan styrktist í trúnni á góða þjónustu þegar að kom að uppsetningu. Uppsetningaraðilinn var mjög þolinmóður, skýrði vel út fyrir henni hvernig hnappurinn virkaði, lét hana prófa hnappinn, æfa sig vel og heyra frá starfsmönnum stjórnstöðvar í gegnum kalltækið þegar hún ýtti á hnappinn eins og um ósk um aðstoð væri að ræða. Hún var alsæl með að geta tekið hnappinn í sturtuna, henni létti mjög við að vita að þar væri hún örugg og að hjálp væri á næsta leiti ef á þyrfti að halda. Að sögn dótturinnar er fjölskyldan örugg með að aðstoð sé skammt undan verði mamma þeirra fyrir óhappi, og þau vita að þeir sem veita hana kunna til verka, öryggisverðir Securitas eru vel menntaðir og kunnandi varðandi t.d. lífsbjörg. Mamman er alsæl með hnappinn, finnur til mikils öryggis með hann um hálsinn og fjölskyldan örugg með mömmu og ömmu í umsjá Securitas.

 

 

 

 

www.securitas.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum