fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Út í bláinn – Perlunni: Brot af því besta í íslenskri og erlendri villibráð

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 7. október 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við bjóðum upp á brot af því besta í íslenskri og erlendri villibráð fyrir jólin. Við leikum okkur talsvert með klassíska jólarétti og jólahefðir. Perlan hefur í gegnum tíðina verið einn helsti staðurinn fyrir Íslendinga að hittast og njóta samverunnar á aðventunni og ætlum við að halda því áfram. Við munum t.d. heiðra hefðina með því að gera okkar útgáfu af frægri rjúpusúpu sem boðið var upp á hér á árum áður,“ segir Atli Þór Erlendsson, yfirmatreiðslumaður á veitingastaðnum Út í bláinn, sem er í Perlunni.

Atli segir að ásamt þessu hefðbundna sem finna má á jólahlaðborðum sé áhersla lögð á nýjungar og að mæta ólíkum þörfum: „Við höfum alveg frá opnun stefnt að því að bjóða upp á eitthvað fyrir alla og því má nefna að við bjóðum ekki bara upp á þungar steikur heldur líka fjölbreytta grænmetisrétti.“

Veisla á hverjum degi

Jólahlaðborðið hefst þann 16. nóvember og er í boði daglega eftir það alveg fram til Þorláksmessu. Staðurinn er opnaður kl. 18 öll kvöld. Verð sunnudaga til miðvikudaga er 8.500 kr. á mann en fimmtudaga til laugardaga 9.900. Sérvalin vín kosta 7.200 á manninn. 50% afsláttur er fyrir börn 6 til 12 ára og frítt fyrir börn 5 ára og yngri.

Matseðill jólahlaðborðsins:

FORRÉTTIR

Brauðkarfa frá Kruðeríi, súrdeigsbrauð, sólkjarnabrauð, laufabrauð og þeytt smjör

Rjúpusúpa 2018

Graskerssúpa (vegan)

Bökuð dönsk lifrarkæfa með steiktum sveppum og stökku beikoni

Grafin rjúpa með kjúklingalifrarparfait og rifsberjum

Rauðrófusalat (vegan)

Sætar kartöflur með trönuberjum og hnetum (vegan)

Jóla-kryddsíld

Heitreyktur lax

Grafinn lax

Blandað skelfisksalat

Hreindýrabollur í bragðmikilli villibráðarsósu

Villibráðar vol-au-vent

AÐALRÉTTIR

Jólakrydduð purusteik

Hægelduð kalkúnabringa með salvíu og rósmaríni

Grilluð rauðhjartarsteik

Heileldað nauta rib-eye

Hin margrómaða hnetusteik að hætti Kela (vegan)

Grillað toppkál með poppuðu kínóa og blóðberg (vegan)

Rauðvínssósa

Villisveppasósa (vegan)

Okkar eigin rauðkál, eplasalat, steiktar kartöflur og grænmeti

 

Glæsilegt eftirréttahlaðborð unnið af matreiðslumönnum staðarins í góðu samstarfi við bakarameistara og kökugerðarmenn Kruðerís.

Vefsíða: https://utiblainn.is/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum