fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Kynning

Jólahlaðborð Lækjarbrekku: Stórveisla á vingjarnlegu verði

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 6. október 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Jólahlaðborðin eru sérpöntuð og eru haldin í sölunum okkar, Kornhlöðunni og Litlu Brekku. Kornhlaðan tekur 100 manns í sæti en Litla Brekka 60. Salirnir eru samliggjandi og því er hægt að taka báða í einu og halda samkvæmi fyrir 160 manns í sæti,“ segir Ívar Þórðarson hjá Lækjarbrekku en jólahlaðborð staðarins er ávallt vinsælt hjá fyrirtækjum og hópum.

Til staðar er góð aðstaða fyrir veislustjórn, ræður og skemmtiatriði, en þarna er hljóðkerfi og skjávarpi. Þá spillir ekki fyrir að nýbúið er að gera upp báða salina og eru þeir mjög huggulegir og aðstaða öll hin besta.

 

„Við erum sjaldan með sértilboð á jólahlaðborðið en erum þess frekar með vingjarnlegt verð á þessu sem hefur ekki hækkað í þrjú ár,“ segir Ívar en hlaðborðið kostar aðeins 8.900 kr. á manninn.

Úrvalið er glæsilegt og girnilegt. Gæsasúpa er í forrétt og af köldum réttum má nefna krækiberjasíld, brennivínssíld, graflax og sítrusmarinerað sjávarsalat. Meðal kjötrétta í forrétt eru hangikjöt með uppstúf, drottningaskinka með heilkorna sinnepsósu, gæsa- og andarsalat og hreindýrapaté.

Í aðalrétt eru kryddjurtamarinerað lambalæri, purusteik, léttreykt kjúklingabringa og hreindýrabollur. Sykurbrúnaðar kartöflur, sætkartöflumús, kartöflusalat, rósakálssalat og eplasalat eru í meðlæti ásamt mörgu fleiru. Meðal eftirrétta eru Ris A La Mande, brúnkökur með saltkaramellu, turkish pepper pavlova, súkkulaðimús, kókoskúlur og fleira.

Gott er að panta jólahlaðborð í síma 551-4430. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið info@laerkjarbrekka.is sem er svarað greiðlega. Er þá hægt að fá kostnaðinn skriflegan og allar fleiri mikilvægar upplýsingar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum