fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Kynning

Gómsæt villibráð í Grindavík

Kynning
Tómas Valgeirsson
Föstudaginn 5. október 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veitingastaðurinn Fish House hefur fengið létta yfirhalningu en staðurinn er uppspretta margra góðra minninga í hugum íbúa Grindavíkur og jafnvel annarra Suðurnesjamanna. Staðurinn hefur hænt að sér tónlistarfólk landsins og er geysivinsæll meðal músíkanta og tónlistarunnenda. Kári Guðmundsson er á þriðja ári í rekstri staðarins og hafa viðskiptin gengið eins og í sögu. Hreindýraborgarinn hans Kára hefur notið sérlega mikilla vinsælda undanfarin ár og margir hafa beðið spenntir eftir komu hans og hefur ávallt verið ágætis gestagangur hjá Kára og félögum, ekki síst í desember.

„Okkur hefur gengið mjög vel. Við höfum lagt okkur mikið fram og fengið góð ummæli. Það hefur verið aukning hægt og bítandi alveg síðan við tókum við,“ segir Kári og bendir á Villibráðakvöldið mikla en þetta er í annað árið í röð þar sem slíkur matseðill verður lagður fram.

Kári segir að svo vel hafi gengið og umfangið svo mikið að nú standi til að hafa villibráðakvöldin tvö þetta árið og verða þau haldin dagana 16. og 17. nóvember. Kári segir matseðilinn ekki vera af verri endanum og lofar huggulegri stemningu í sal sem tekur hátt í sextíu manns. „Við verðum með gæs, reykta og grafna, ásamt bleikjutartar og rjúpusúpu. Einnig verðum við með hreindýr, kryddað lambafille og ýmislegt fleira ásamt fordrykk.“

Kári segir margt á boðstólum vera það sem hann hafi sjálfur veitt enda er hann mikill veiðimaður og telur villibráð vera mat í hágæðaflokki. „Þetta villibráðakvöld gekk svo vel í fyrra að mér fannst sniðug hugmynd að gera þetta aftur og aðeins betur. Þetta árið verðum við með lifandi tónlist og mun trúbador spila langt fram eftir kvöldi. Þetta verður meira spennandi en í fyrra og meira sniðið fyrir hvern og einn í raun og veru,“ segir Kári.

„Í fyrra fékk ég til mín gesti alla leið úr Kópavoginum og þeir töluðu um að svona villibráðakvöld væru á undanhaldi. Þar af leiðandi ákvað ég að bæta við öðru kvöldi og sjá hvort því yrði ekki vel tekið.“

Þá nefnir Kári að eftirsótti hreindýrahamborgarinn verði borinn fram á fjörugum föstudegi, sem verður 30. nóvember. „Það hefur verið mikil hefð á þeim degi að veitingastaðirnir hérna við Hafnargötuna geri eitthvað skemmtilegt,“ segir Kári. „Þetta er þriðja árið sem við berum fram þessa hamborgara og það má segja að þeir hafi slegið í gegn hjá okkur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum