Helluhreinsun ehf.
Núna er sá tími genginn í garð þegar húseigendur láta hreinsa hellulögð plön, garðstíga og innkeyrslur. Margir gera þau mistök að láta líða of langan tíma áður en hafist er handa við helluhreinsun og aðrir misreikna sig með því að leita ekki til fagmanna við verk sem reynast þeim ofviða. „Fyrst fer ég og mæli og það er fólki algjörlega að kostnaðarlausu. Síðan geri ég tilboð og leyfi fólki að hugsa málið í friði. Það hefur síðan samband ef það vill taka tilboðinu en ég er ekkert að ónáða það aftur ef það hefur ekki samband,“ segir Böðvar Sigurðsson hjá Helluhreinsun ehf. Er það óneitanlega þægilegt að geta fengið umfang verksins og kostnað á hreint, án nokkurs tilkostnaðar.
Helluhreinsun ehf. ræður yfir afar góðum tækjakosti til að fást við helluhreinsun en um er að ræða háþrýstigræjur í öllum stærðum og gerðum til þess að nota á hina ýmsu hellulögðu fleti. „Svo erum við með svokallaða háþrýstihatta eða eins konar hlemma. Hlemmurinn nær að halda slettum vegna háþrýstingsins í lágmarki þó svo það sé aldrei hægt að koma algerlega í veg fyrir þær. En við þrífum allt vel eftir okkur og þegar allt er klárt þá er allt tandurhreint og planið hið glæsilegasta,“ segir Böðvar Sigurðsson.
Helluhreinsun ehf. býður einnig upp á eitrun sem kemur í veg fyrir að sá gróður sem hreinsaður er burt á milli hellna vaxi aftur að vörmu spori. Eitrið þarf að fá að virka í um níu daga áður en lengra er haldið. Eftir hreinsunina, sem er yfirleitt dagsverk, er stéttin sílanborin og loks sönduð. Sílanið verndar hellurnar fyrir drullu og vatns- og frostskemmdum og tekur eingöngu um tvo klukkutíma að þorna og eftir það er það nær ósýnilegt. Í rigningu perlar vatnið af hellunum í stað þess að bleyta þær upp. Það er mikilvægt merki um að fagmenn hafi verið að verki.
Helluhreinsun ehf. er til húsa að Lækjarási 3, 210 Garðabæ. Hægt er að biðja um mælingu og tilboð þér að kostnaðarlausu, eða fá aðrar upplýsingar með símtali eða fyrirspurn á netfang fyrirtækisins.
Sími: 775-6080
Netfang: helluhreinsun@helluhreinsun.is.
Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Helluhreinsunar, helluhreinsun.is.