fbpx
Laugardagur 21.júní 2025
FókusKynning

Laser Tag er frábær skemmtun fyrir fjölbreytta hópa

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 22. febrúar 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fólk á öllum aldri skemmtir sér konunglega í Laser Tag, Salavegi 2, Kópavogi. Laser Tag er hágæða útgáfa af skemmtilegum afþreyingarleik þar sem þátttakendur klæðast Laser Tag-vestum og fela sig, elta og hitta andstæðinginn með laserbyssu. Leikurinn er fyrir fólk á öllum aldri, unga sem aldna. Laser Tag er 100 prósent skemmtun!

Byssurnar eru skaðlausar laser-/geislabyssur með innrauðum geislum. Laser Tag er því fullkomin skemmtun, laus við marbletti! Hafa ber í huga að í salnum eru blikkandi ljós og leikmyndareykur.

Frábær skemmtun fyrir fyrirtækjahópa í hádeginu

Helena Rúnarsdóttir hjá Laser Tag segir að nú sé vinsælt hjá vinnustöðum að koma í Laser Tag í hádeginu og efla hópinn með góðri afþreyingu. Hádegismaturinn getur þá fylgt með enda er hægt að fá pakkann með pítsu og gosi.
Helena segir annars að Laser Tag sé skemmtun fyrir fólk á öllum aldri, frá átta ára og upp úr.

„Við miðum við átta ára aldur vegna þess að yngri börn valda ekki vestunum og byssunum, þetta er of þungt fyrir þau. Hins vegar er þetta aldurstakmark bara til leiðbeiningar, ef það kemur hingað fjölskylda og einn í hópnum er sex ára þá er það auðvitað ekkert mál.“

Helena segir að fullorðið fólk á öllum aldri hafi ekki síður gaman af Laser Tag en börn:
„Hingað kom amma um daginn sem var að halda upp á sjötugsafmælið sitt og voru börnin og barnabörnin með í för.“

Afmælishópar eru mjög algengir viðskiptavinir hjá Laser Tag en einnig koma fjölskyldur og fyrirtækjahópar, auk þess sem þetta er vinsæl skemmtun í steggjunum og gæsunum.

SP: Er þetta dýr eða ódýr skemmtun?

„Ég myndi segja að við værum sanngjörn í verði. Við höfum reyndar ekki hækkað verðið hjá okkur í fimm til sex ár og bjóðum samt upp á bestu og öflugustu tækin,“ segir Helena. Hún minnir á að opnunartíminn sé bara til viðmiðunar og reynt sé að koma til móts við óskir allra um tímasetningar.

En hvað eru hóparnir stórir?
„Við höfðum tekið alveg upp í 50 manna hópa en svo stórum hópum þurfum við að skipta niður í lið því við komum 15 manns inn í salinn í einu. Mjög þægileg og algeng stærð á hópum er um 20 manns.“

Mjög mikið er bókað hjá Laser Tag um þessar mundir og segir Helena að gott sé að panta með sjö til tíu daga fyrirvara. Hins vegar getur fólk alltaf hringt og reynt er að koma til móts við óskir þess hvenær sem er.

Nánari upplýsingar má fá á heimasíðu Laser Tag, lasertag.is. Tímapantanir fara á netfangið lasertag@lasertag.is eða í síma 564-6644.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7