fbpx
Mánudagur 04.maí 2026
FókusKynning

Fyrirspurn: Verkir í brjóstum

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 29. janúar 2017 21:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirspurn: Í sirka tvær vikur er mér búið að vera mjög illt í brjóstunum. Tilfinningin er svipuð og þegar ég var ófrísk. Ég fór til heimilislæknis og hún þreifaði brjóstin og fann ekkert athugavert. Svo í fyrradag (14. jan.) þá bættist við frekar mikil glær og þunn útferð úr kynfærum. Ég ákvað að taka þungunarpróf þótt mér fyndist mjög ólíklegt að ég væri ófrísk þar sem karlinn var tekinn úr sambandi eftir seinna barnið og það er rúm vika síðan ég hætti á síðustu blæðingum. Eins og ég bjóst við, þá kom blússandi neikvætt á þungunarprófinu. Þetta er að trufla mig frekar mikið. Mér er illt í brjóstunum stanslaust og útferðin er frekar mikil ( alveg tær, lyktarlaus og þunn). Hvað gæti þetta mögulega verið?“

Svar: „Verkir í brjóstum er frekar algengt vandamál hjá konum. Eins og þú nefnir myndast oft spenna í brjóstum á meðgöngu og einnig fyrir blæðingar. Hormónasveiflur geta einnig haft áhrif á brjóstin og er það langalgengasta ástæða verkja í brjóstum. Krabbamein í brjóstum kemur yfirleitt fram sem einkennalausir hnútar sem hægt er að finna við þreifingu, því er ólíklegt að það sé vandamálið. Stundum geta stoðkerfisverkir komið þannig fram að hægt er að túlka verkina frá brjóstum. Eins getur millirifjagigt valdið mjög sárum verkjum sem geta legið undir brjóstinu, en þeir verkir koma frekar fram við ákveðna hreyfingu eins og öndun eða líkamsbeitingu.“

Af doktor.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
22.11.2025

Gjafahandbókin fyrir Svartan föstudag – Finndu fullkomnar gjafir á ótrúlegu verði

Gjafahandbókin fyrir Svartan föstudag – Finndu fullkomnar gjafir á ótrúlegu verði
Kynning
10.11.2025

Kjörbúðirnar lækka verð – 200 vörur á Prís verði

Kjörbúðirnar lækka verð – 200 vörur á Prís verði
Kynning
23.01.2025

Vetrarhátíð Heklu fer fram um helgina

Vetrarhátíð Heklu fer fram um helgina
Kynning
09.01.2025

Notalegur lúxus hjá Regus á Laugavegi og Síðumúla

Notalegur lúxus hjá Regus á Laugavegi og Síðumúla
Kynning
23.10.2024

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS
Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV