fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Gott að hugsa á þessum nótum

Áslaug Guðrúnardóttir er höfundur bókar um mínímalískan lífsstíll

Kolbrún Bergþórsdóttir
Föstudaginn 12. febrúar 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sífellt fleiri aðhyllast mínímalískan lífsstíl. Þar á meðal er Áslaug Guðrúnardóttir en hún er höfundur bókarinnar Mínímalískur lífsstíll – Það munar um minna. Bjartur gefur bókina út og Þórarinn Baldursson er höfundur teikninga.
Áslaug er fyrst spurð hvað það merki að fylgja mínímalískum lífsstíl. „Mínímalískur lífsstíll snýst um það að fara yfir líf sitt, skoða það sem maður á og spyrja sig hvort það sé það sem maður þarf,“ segir hún. „Við eigum yfirleitt svo margt sem við notum ekki. Mínímalískur lífsstíll snýst um að losa sig við það sem er kannski bara að þvælast fyrir manni. Þetta á ekki bara við um hluti heldur einnig margar athafnir og það hvernig maður lifir lífinu. Það er hægt að laga svo margt.“

Hvenær uppgötvaðir þú mínímalískan lífsstíl?

„Þegar því var stungið að mér hvort ég vildi ekki skrifa bók um mínímalískan lífsstíl þá áttaði ég mig á því að ég hef á vissan hátt alltaf lifað samkvæmt honum, þótt ég hefði ekki verið meðvituð um að það væri sérstakur lífsstíll. Ég er enn að. Um daginn var ég að taka til í skáp þar sem ég geymi rúmföt fjölskyldunnar og hann var svo troðinn að það var varla hægt að koma nokkru þar inn. Það sem ég sá að við notum ekki fór ég með í Rauða krossinn og um leið kemur það að gagni annars staðar .

Stærsta skrefið í mínímalíska lífsstílnum var þegar við fjölskyldan fluttum úr risastóru húsi í hús sem er þrisvar sinnum minna. Við þurftum að minnka ansi mikið við okkur og seldum bækur, föt og húsgögn og gáfum Barnaspítala Hringsins ágóðann. Það sem seldist ekki sótti Samhjálp og seldi á nytjamarkaði.“

Lítið pláss fyrir óþarfa

Áslaug segir að það hafi verið hið besta mál að flytja í mun minna húsnæði. „Það hentaði mér betur og það er auðveldara að halda því við og þrífa. Í minna húsi er lítið pláss fyrir óþarfa og maður er fljótari að losa sig við það sem er ónauðsynlegt. Mér fannst húsið sem við fluttum úr vera alltof stórt. Ef einhver annar var heima vissi maður stundum ekki af því vegna þess að hann var á einhverri annarri hæð. Ég kann betur við að hafa fólkið mitt nær mér og við höfum alveg nóg pláss.“

Hún segir að fólk sé að verða æ meðvitaðra um mínímalískan lífsstíl. „Það er alveg sama hvert ég kem, fólk vill tala um þetta við mig. Það eru allir með eitthvað sem þeir vilja gjarnan losna við og þegar þeir kynnast mínímalíska lífsstílnum átta þeir sig á því að það er hægt án þess að setja allt á annan endann.“

Ólst upp við nægjusemi

Áslaug segist gera skýran mun á mínímalisma og nægjusemi. „Ég ólst upp við nægjusemi á frekar fátæku heimili í Breiðholti og þar þurfti maður að sætta sig við að eiga það sem maður átti, það var ekkert annað í boði. Nú er svo margt í boði. Fólk sankar að sér alls konar hlutum í hugsunarleysi án þess að hafa sérstaka þörf fyrir þá eða ánægju af þeim. Áður en fólk veit af er það komið með fulla skápa og skúffur af dóti sem það hefur ekki not fyrir. Um leið og maður fer að íhuga hvort maður þurfi á öllu þessu að halda fer maður að velta fyrir sér umhverfisvernd og til dæmis því hvort ódýru fötin manns séu framleidd við mannsæmandi aðstæður. Það gerir manni bara gott að hugsa á þessum nótum.“

Í nýju starfi

Áslaug, sem vann í mörg ár sem fréttakona á RÚV, er komin í nýtt starf sem kynningarstjóri hjá Listasafni Reykjavíkur. „Þetta nýja starf á mjög vel við mig og það er óskaplega skemmtilegt,“ segir hún og bætir við: „Samstarfsfólkið er frábært og það er líf og fjör á vinnustaðnum og ég hef miklu meira að gera en ég hefði nokkru sinni getað ímyndað mér.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum