fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
FókusKynning

Dj Grill – Frábær hamborgarastaður í miðbæ Akureyrar

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 29. nóvember 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dj Grill er heimilislegur, vinalegur og þægilegur hamborgarastaður í miðbæ Akureyrar. Staðurinn stendur fyllilega undir þessum þremur lýsingarorðum því þú getur komið með fjölskyldunni og sest niður í rólegheitum og fengið þér hamborgara, samloku eða aðra smárétti. Þú getur líka skotist í hádegispásunni og fengið þér einn snöggan borgara og ef áhugi er fyrir hendi er lítið mál að koma og horfa á boltann á Dj Grilli. Þar eru sýndir flestir leikir sem eru á dagskránni í enska boltanum og í meistaradeildinni.

Núverandi eigendur tóku við staðnum fyrir að verða átta árum, þrátt fyrir að vera á þeim tíma í tveimur öðrum störfum, að byggja sér húsnæði og með búskap til hliðar!

„Þetta byrjaði allt í hálfgerðu gríni“

„Það vantaði rekstraraðila fyrir staðinn og Elva Sigurðardóttir og maðurinn hennar, Snæbjörn Sigurðsson, ákváðu að slá til og prófa. Þau tóku við rétt fyrir verslunarmannahelgina og vissu ekkert út í hvað þau voru að fara, og varðandi tilsögn um reksturinn treystu hjónin á starfsfólkið og eiganda.

Þetta gekk mun betur en nokkur hafði þorað að vona og nokkrum mánuðum síðar urðu eigendaskipti. Stuttu eftir það hætti Elva í sinni vinnu og hefur síðan einungis komið að Dj Grilli. Snæbjörn er smiður og búskapurinn er enn á sínum stað, sumir virðast bara hafa fleiri tíma í sólarhringnum en aðrir.

Staðurinn hefur tekið miklum breytingum síðan árið 2008, bæði útlitslega og varðandi matseðillinn. Fjölskyldan er nánast öll með annan fótinn á svæðinu, en starfsmannahópurinn stækkar ört eftir því sem líður á. Einn starfsmaður hélt áfram eftir eigendaskiptin og stendur enn vaktina við grillið og er hann löngu orðinn einn af fjölskyldunni.“

Zurgbassi langvinsælastur

„Staðurinn á orðið stóran fastakúnnahóp en sem betur fer sjáum við líka mörg ný andlit,“ segja Elva og Snæbjörn.

„Það gleður okkur líka alltaf jafn mikið þegar utanbæjarfólk kemur aftur og aftur til okkar þegar það á erindi til Akureyrar. Þrátt fyrir að ostborgarinn sé alltaf klassískur hefur hamborgari sem við köllum Zurgbassa slegið í gegn og er sá allra, allra vinsælasti á seðlinum hjá okkur en hann er með piparosti og fleira góðgæti. Flestir hamborgararnir hjá okkur hafa stafina Dj fyrir framan; Dj Maggi, Dj Hulda og svo framvegis, en þess má geta að þegar við tókum við staðnum voru þetta helstu nöfnin sem voru að spila á Akureyri á þeim tíma. Zurgbassi er t.a.m. sviðsnafn sem Ingi Þór, sonur okkar, og vinur hans notuðu þegar þeir spiluðu.“

Dj Grill
Strandgata 11, 600 Akureyri
Sími: 462–1800, www.facebook.com/Dj-Grill

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum