fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
FókusKynning

Græni hatturinn snýst um lifandi tónlist

Kynning

Einn öflugasti tónleikastaður landsins

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 27. nóvember 2016 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Græni hatturinn á Akureyri er fyrir löngu orðinn einn þekktasti tónleikastaður landsins en þar halda landsþekktir tónlistarmenn tónleika fyrir fullu húsi þrjú kvöld í viku. Frábær hljómburður og framúrskarandi aðstaða gera það meðal annars að verkum að það eru tónlistarmennirnir sjálfir sem hafa samband við staðarhaldarann, Hauk Tryggvason, og panta tónleika, en ekki öfugt. Oftast er húsið bókað marga mánuði fram í tímann.

„Hér er bara opið þegar tónleikar eru í gangi og þá er húsið opnað klukkutíma áður en tónleikarnir hefjast, eða klukkan 20 á fimmtudagskvöldum og 21 á föstudags- og laugardagskvöldum. Síðan er lokað um klukkustund eftir að tónleikunum lýkur,“ segir Haukur en hann hefur rekið Græna hattinn frá árinu 2003. Orðspor staðarins sem tónleikastaðar hefur vaxið jafnt og þétt og er mjög algengt að erlendir tónlistarmenn hafi sambandi og falist eftir því að troða upp á staðnum.

„Hér spilaði til dæmis hljómsveitin The Sex Pistols Experience í haust en hún flytur tónlist hinnar frægu, ensku pönkhljómsveitar The Sex Pistols. Hin heimsfræga, hollenska rokkhljómsveit Focus spilaði síðan hér í fyrra. Ég hélt reyndar að þetta væri eitthvert grín þegar umboðsmaður þeirra hafði samband enda hélt ég mikið upp á þessa hljómsveit á unglingsárum,“ segir Haukur.

Græni hatturinn er til húsa að Hafnarstræti 96 á Akureyri og að sögn Hauks er hljómburður í húsinu afskaplega góður:

„Það er afar góður viður í húsinu og timburloft. Sviðið er síðan alveg pakkað í einangrun. Auk þess höfum við allt til alls hér fyrir tónlistarmennina, alla magnara, hljóðkerfi, trommusett, Hammond-orgel og píanó.“

Aðgöngumiðar á tónleika eru seldir á vefsíðunni graenihatturinn.is og í Eymundsson en síðan eru seldir einhverjir afgangsmiðar á staðnum. Stundum selst þó allt upp á netinu. Nær alltaf er komin löng biðröð áður en tónleikar hefjast og húsið orðið fullt um korter eftir opnun.

Staðurinn tekur 180 manns í sæti en aðrir gestir njóta tónlistarinnar standandi. Bar er á staðnum þar sem hægt er að fá flesta hugsanlega drykki, áfenga sem óáfenga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7