fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
FókusKynning

Jólavörurnar að koma í hús: Kjólar, skór og fleira fínerí

Kynning

Prinsessan, Álfabakka 14b

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 4. október 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Prinsessan er gróin og sívinsæl kjólabúð fyrir konur á öllum aldri, staðsett í Mjóddinni. Verslunin hefur verið starfandi í 19 ár og þangað koma í bland við nýja viðskiptavini margir sem átt hafa viðskipti við verslunina í mörg ár. Um það má nefna skemmtilegt dæmi um konu sem eignast hafði fallegan kjól úr Prinsessunni er hún var lítil stúlka og keypti þar brúðarkjólinn sinn þegar hún gifti sig! Núna í október koma jólakjólarnir á stelpurnar og flottir hvítir og silfurlitaðir hælaskór og flatir skór. Einnig koma nýir konujólar.

Prinsessan hefur alltaf verið þekkt fyrir fallega síðkjóla og stutta kjóla, stærðir XS til 5X. Einnig flotta prinsessukjóla á stelpur. Síðan eru alltaf útsölukjólar frá 12.000 kr. og stuttir kjólar frá 5.000 kr. Nýlega komu síðan í verslunina toppar og túnikur sem eru í einstaklega fallegum mynstrum og litum. Eru þessar vörur á mjög hagstæðu verði, fínt í afmælis- og jólagjafir.

„Topparnir og túnikurnar eru á 7.500 krónur og svo er einn og einn á 8.500. Auk þess er 10 prósenta afsláttur fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja. Fötin hérna eru yfirleitt í fallegum litum sem virðast ganga vel í konur. Þetta er fyrir konur á öllum aldri og í öllum stærðum því við erum með litskrúðuga toppa og túnikur í stærðum frá S upp í 3XL,“ segir Svanhildur Eyjólfsdóttir, sem hefur staðið vaktina lengi í Prinsessunni og margir viðskiptavinir verslunarinnar hafa haldið tryggð við hana jafnframt því sem margir nýir bætast við á hverju ári.

„Útsölusíðkjólarnir eru síðan sérstaklega vinsælir enda mjög fallegir,“ bætir Svanhildur við, en allt frá barnungum telpum upp í eldri dömur eignast fallega kjóla frá Prinsessunni.

Þess má geta að ný sending af síðkjólum, toppum og túnikum var að koma í hús sem afar spennandi er að skoða og kynna sér enda eru framundan tímar sem geta kallað á ný spariföt, til dæmis árshátíðir og síðar jólahlaðborð.

Fyrir utan þetta er Prinsessan með fallega spariskó til sölu og auk þess mjög falleg spariföt fyrir drengi.
Prinsessan er til húsa að Álfabakka 14B í Mjóddinni. Opið er virka daga frá kl. 11 til 18 og laugardaga frá kl. 11 til 14. Sjá nánar á vefsíðunni prinsessan.is og Prinsessan á Facebook.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7