fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

„Við ljósverur erum öðruvísi“

Ágústa Kolbrún valdi að vera ein á aðfangadagskvöld

Indíana Ása Hreinsdóttir
Miðvikudaginn 6. janúar 2016 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þetta er fyrir alla sem fá köllun hjá sér um að vera heilarar. Ég kalla okkur ljósverur – okkur sem komum á jörðina til þess að létta í kringum okkur. Við erum öðruvísi, pössum ekki inn og tökum gjarnan ekki þátt í jólunum og skiljum ekki þessi læti. Við erum hér til að breyta og gera heiminn betri,“ segir Ágústa Kolbrún Roberts, jógakennari og heilari, sem verður með heilunarnámskeið næsta hálfa árið, eina helgi í mánuði. „Fyrsta helgin fer í að útskýra heilun auk þess að hópurinn kynnist innbyrðis og kynnist mér. Næst kenni ég höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð, svo reiki og svo förum við yfir frumefnin. Helgina þar á eftir fer ég í djúpvefjanudd en í öllum líkama okkar er vefur sem heldur líkamanum saman. Oft þegar við verðum fyrir áfalli festist áfallið í vefnum en þá er hægt að finna út hvar áfallið er og nudda það út. Djúpvefjanudd er því ekki eins og venjulegur nuddtími heldur heilunarnudd,“ segir Ágústa Kolbrún og bætir við að síðasta helgin fari í yfirferð.

Tengist fyrri lífum

Ágústa Kolbrún hefur starfað í andlega geiranum í 16 ár og gæti ekki hugsað sér lífið án andlegra málefna. „Alls ekki. Ég trúi því að ég sé ekki að koma hingað í fyrsta skiptið og að í þetta skipti hafi ég ákveðið að koma sem kennari. Eftir því sem ég fer dýpra inn í andlega heiminn finnst mér ég tengjast betur inn í fyrri lífsreynslu. Ég er því ekki bara að kenna frá þessu lífi heldur nota alla mína reynslu og frá öllum mínum kennurum.“

Ein á aðfangadagskvöld

Hún segir ávinninginn af andlegri vinnu ómælanlegan. „Að geta upplifað ást gagnvart sjálfri sér sem allir eru að leita að út á við, að elska sig og vera ástfanginn af sjálfri sér, svo allt hitt sem kemur utan frá verður extra bónus verður ómetanlegt. Þetta snýst um að finna sjálfan sig. Ég var ein á aðfangadagskvöld og hef aldrei verið jafn tengd og hamingjusöm. Ég borðaði bara það sem mig langaði að borða, þegar mig langaði, og opnaði pakkana þegar ég fékk þá. Ávinningurinn af andlegri vinnu er að vera frjáls; frjáls frá áliti annarra og þörfinni fyrir að þóknast öðrum og frjáls frá sjálfum sér og þeim hugsunum sem koma upp,“ segir hún en bætir við að þessi leið sé ekki alltaf auðveld. „Það er ekki fyrir alla að vakna til vitundar, eins og það kallast. Það getur verið svo þægilegt að vera sofandi og hafa enga sjálfstæða skoðun. Þegar maður hefur sjálfstæða skoðun getur hann fengið á sig mótbyr. Fólkið manns spyr hvort maður ætli eingöngu að gera það sem maður vill? Hvað með það? Ætlar maður bara að elska sig, vera sjálfstæður og ekki elska það? Þetta er ekki auðveld leið en hún er þess virði.“

„Fjölskyldan mín er loksins orðin sátt við það hvernig ég er og ætlast því ekki til neins af mér.“

Yndisleg jól

Blaðamaður vill fá að vita meira um jól í einangrun. „Þetta var í fyrsta skiptið sem ég hef verið ein og ég hlakkaði mikið til. Vanalega hef ég tekið þátt í íslenskum hefðum þar sem er borðað klukkan sex og allt þetta venjulega jólastress með tilheyrandi streitu ef ekki allt er tilbúið á réttum tíma. Mig hefur aldrei langað að taka þátt í slíku auk þess sem ég hef alltaf þurft að koma með eigin mat því því ég hef annaðhvort verið sykur- eða kjötlaus. Á jóladag hitti ég svo vini mína í sumarbústað þar sem sonur minn kom líka. Þar stunduðum við mikla hugleiðslu og héldum okkar amerísku jól. Við vorum með hnetusteik og alls kyns veganmat, borðuðum á gólfinu og sátum í hugleiðsluhring. Syni mínum fannst þetta æði. Svo vorum við með hljóðfæri og sungum og enduðum á að sofa þarna. Þetta varð bara „sleep over“. Þetta voru yndisleg jól. Þau bestu sem ég hef upplifað. Fjölskyldan mín er loksins orðin sátt við það hvernig ég er og ætlaðist því ekki til neins af mér. Ég kem því vel undan jólunum, bæði fjárhagslega og andlega,“ segir hún og brosir.

2015 „rosalegt“ ár

Ágústa Kolbrún segist spennt fyrir árinu 2016. „Síðasta ár var rosalegt. Ég skildi, byrjaði með æðislegum strák og hætti með honum. Þetta ár reyndi á hjartað. Nýja árið verður fullt af spennandi verkefnum. Ég á eftir að uppskera árið 2016.“

Þeir sem vilja vita meira um heilunarnámskeið Ágústu Kolbrúnar geta skoðað Facebook-síðu hennar, Jóga og heilun með Ágústu Kolbrúnu Roberts.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum