fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
FókusKynning

Gæði og fyrirmyndar þjónusta hjá Mekonomen

Kynning
Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 9. febrúar 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mekonomen er ein öflugasta varahlutaverslun á Íslandi. Verslunin sérhæfir sig í bílavarahlutum og aukahlutum fyrir allar bílategundir. Kjarni starfseminnar er þjónusta við bílaverkstæði en einnig bílaáhugamenn og almenning. Páll Gíslason einn eigenda Mekonomen á Íslandi og segir fyrirtækið leggja mikla áherslu á að bjóða upp á gæðavörur og fyrirmyndar þjónustu. Tengt versluninni og í sama húsi er verkstæði sem rekið er undir merkjum Mekonomen: Mekonomen Bílaverkstæði. Í Skandinavíu eru 2.200 Mekonomen Bílaverkstæði tengd verslunum. Á næstu misserum munu fleiri Mekonomen Bílaverkstæði verða sett á laggirnar hér á landi.

Hámarksgæði og nýsköpun

„Helsta markmið okkar er, með nýsköpun, hámarksgæðum og skilvirkum rekstri, að bjóða neytendum og fagaðilum lausnir sem létta þeim lífið í bílatengdum málum,“ segir Páll. „Hugsjón okkar byggir á eftirfarandi grunnstefnu: að vera fyrsti kostur bíleigandans og létta honum lífið þegar kemur að öllu tengdu bílnum,“ segir hann. „Við seljum eingöngu vörur sem eru jafngóðar eða betri en þær sem koma „orginal“ í bílunum og þess vegna erum við með að lágmarki þriggja ára ábyrgð og upp í fimm ár, sem tryggir fyrrnefnd gæði,“ bætir hann við.

Öflugur lager og vefur fyrir fagaðila

MekoCat (Mekonomen Catalog) er varahlutavefur fyrir fagaðila. Hvert verkstæði hefur sinn aðgang að MekoCat. Um 11.000 bifvélavirkjar í Skandinavíu nota kerfið daglega. Hér á landi eru 400 verkstæði, bílaleigur og aðrir fagaðilar tengdir MekoCat. Í MekoCat sér bifvélavirkinn hvort hluturinn er til á lager hér heima eða á miðlægum lager Mekonomen í Svíþjóð. Afgreiðslutími frá lagernum í Svíþjóð getur farið niður fyrir þrjá sólarhringa. „Frá því í apríl í fyrra höfum við stækkað lagerinn hér á landi um 90% og erum enn að. Við keyrum varahlutina út til verkstæðanna; varahluti sem bifvélavirkjarnir panta í MekoCat með nokkrum tölvusmellum í stað þess að sóa tíma sínum í að snattast út um allan bæ. Þetta er gríðarlegur sparnaður fyrir verkstæðið og þann sem greiðir fyrir viðgerðina,“ segir Páll.

Uppgerðir varahlutir með þriggja ára ábyrgð

„Við bjóðum einnig uppgerða varahluti, til dæmis bremsudælur, startara, rafala, stýrismaskínur og fleira sem er með þriggja ára ábyrgð,“ segir Páll. „Við erum einnig með ýmsar rekstrarvörur fyrir bæði verkstæði og einstaklinga,“ bætir hann við. „Það er gaman að nefna að við erum byrjaðir með nýja verkfæralínu frá Sonic sem eru hágæðaverkfæri á mjög góðu verði,“ segir hann í framhaldinu og hvetur hann því fólk að koma við í verslun Mekonomen og sjá hvað þeir hafa upp á að bjóða.

Ný vefverslun væntanleg

Síðar á þessu ári verður opnuð vefverslun fyrir almenning á heimasíðu Mekonomen að sögn Páls þar sem boðið verður upp á nútíma lausnir ásamt nýju appi sem er hugsað til að einfalda samskiptin við viðskiptavini og auka aðgengi.

Sænskt fyrirtæki í grunninn

Verslun Mekonomen var opnuð í maí 2011 á Íslandi og hafa vinsældir hennar aukist verulega með árunum á meðal Íslendinga að sögn Páls. Aðalstöðvar Mekonomen eru í Svíþjóð og er félagið skráð í Kauphöllinni í Stokkhólmi. Um er að ræða stærsta fyrirtæki í Skandinavíu á sviði bílavarahluta sem býður upp á breitt úrval af hagstæðum og snjöllum lausnum fyrir neytendur og fagaðila.

Staðsett í Garðabæ

Mekonomen er staðsett í Smiðsbúð 2 í Garðabæ og er opið hjá þeim alla virka daga frá kl. 08.00 til 18.00 alla virka daga. Kjarnastarfsemin er þjónusta við verkstæðin. „Hér safnast upp mikil reynsla í gegnum samskiptin við verkstæðin sem nýtist almenningi sem kemur í búðina til okkar. Alveg sama hvort þig vantar hjólkopp eða gírkassa þá er um að gera að koma og kanna hvað við getum gert fyrir þig,“ segir Páll að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Enn einn Snapchat-perrinn
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum