fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024

Dóttirin eignaðist barn með eiginmanninum

Er amma og stjúpmóðir sama barnsins – Fyrirgaf dóttur sinni en skilur við eiginmanninn

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 16. maí 2016 20:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lífi hinnar 47 ára Julie King var snúið á hvolf þegar hún komst að því að eiginmaður hennar til skamms tíma, Vince Bienvenu, hafði haldið framhjá henni. Til að bæta gráu ofan á svart hafði Vince haldið framhjá Julie með dóttur hennar. Og hafi áfallið verið mikið varð það ekki minna þegar hún komst að því að Vince átti von á barni með dóttur hennar.

Sátt við hlutskipti sitt

Julie, sem er 47 ára, gekk í hjónaband með Vince í desember 2012 og taldi að hún hefði fundið þann eina rétta. Aðeins nokkrum mánuðum eftir að þau giftu sig, eða vorið 2013, fór Vince að gera hosur sínar grænar fyrir dóttur Julie, hinni 25 ára Leanne Taylor.

Í viðtali við Mail Online segir Julie að áfallið í fyrstu hafi verið mikið en í dag hafi hún fyrirgefið dóttur sinni. Leanne eignaðist dótturina Nevaeh fyrir einu og hálfu ári og segist Julie vera sátt við það hlutskipti að vera stjúpmamma og amma sama barnsins.

Dóttirin dó vöggudauða

Leanne varð fyrir miklu áfalli í mars 2013 þegar dóttir hennar dó vöggudauða. Leanne segir í viðtalinu að Vince hafi verið til taks fyrir hana og tekið á móti henni opnum örmum þegar hún þurfti á að halda. Það hafi svo þróast út í kynferðislegt samband. Hún segist ekki finna til sektarkenndar enda hafi hún þurft á ást og hlýju að halda á þessum tíma. Hana fann hún í örmum Vince.

Það var svo hin dóttir Julie, Christine, sem sagðist gruna að samband þeirra Leanne og Vince væri að þróast út í annað og meira en eðlilegt getur talist. Julie segist hafa gengið á eiginmann sinn og spurt hreint út hvort hann héldi framhjá henni. Því neitaði Vince staðfastlega. Leanne viðurkenndi það nokkru síðar og staðfesti Vince þá að hann hefði stundað kynlíf með Leanne.

Vince vildi bjarga hjónabandinu en allt kom fyrir ekki. Þau eru nú skilin að borði og sæng og vonast Julie til að skilnaðurinn gangi í gegn fljótlega. Þangað til það gerist verður hún áfram stjúpmóðir barnsins.

Kennir Vince um

Þrátt fyrir að bæði Leanne og Vince hafi farið á bak við Julie segist Julie ekki bera kala til dóttur sinnar. Vince beri miklu frekar ábyrgð á því hvernig fór. „Ég kenni Leanne ekki um að hjónabandið hafi farið í vaskinn. Ég kenni Vince um það. Leanne er dóttir mín og ég mun alltaf elska hana, alveg sama hvað.“

Til að byrja með var málið ekki svo einfalt. Leanne og Julie hættu að talast við um nokkra hríð og um eitt ár leið þar til samskipti þeirra urðu aftur með eðlilegum hætti.

Í viðtalinu við Mail Online segist Julie hafa haft áhyggjur af því að barnabarnið myndi líkjast Vince. Hún ákvað að láta það ekki á sig fá til að öðlast innri frið. „Mér fannst hún líkjast honum fyrst, en, Guði sé lof, þá líkist hún honum ekkert í dag.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Brighton staðfestir brottför De Zerbi

Brighton staðfestir brottför De Zerbi
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Búnir að finna arftaka Greenwood – Hefur aðeins skorað þrjú mörk

Búnir að finna arftaka Greenwood – Hefur aðeins skorað þrjú mörk
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Myndband sýnir hrottalegt ofbeldi Diddy gegn fyrrum kærustu sinni

Myndband sýnir hrottalegt ofbeldi Diddy gegn fyrrum kærustu sinni
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Varð yngsti leikmaður í sögu efstu deildar og bætti met stórstjörnu – Var 13 ára fyrir mánuði síðan

Varð yngsti leikmaður í sögu efstu deildar og bætti met stórstjörnu – Var 13 ára fyrir mánuði síðan
Eyjan
Fyrir 13 klukkutímum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Baldur Þórhallsson – Gangi Alþingi fram af þjóðinni skal forseti tafarlaust vísa málinu til þjóðarinnar

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Baldur Þórhallsson – Gangi Alþingi fram af þjóðinni skal forseti tafarlaust vísa málinu til þjóðarinnar
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

Upplifði vítiskvalir á Ozempic: „Verra en að eignast barn“

Upplifði vítiskvalir á Ozempic: „Verra en að eignast barn“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Jóhann Berg gráti næst er hann kvaddi – Sjáðu myndbandið

Jóhann Berg gráti næst er hann kvaddi – Sjáðu myndbandið