fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Ungliðahreyfingar skora á íslensk stjórnvöld – „Ekkert segir jafnmikið um þjóðfélag eins og hvernig það sér um börnin sín“

Jón Þór Stefánsson
Fimmtudaginn 4. júlí 2019 22:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í sameiginlegri yfirlýsingu Ungmennaráðs UNICEF á Íslandi, ungmennaráðs Barnaheilla, Ráðgjafarhóps Umboðsmanns barna og ungliðahreyfingar Amnesty International eru íslensk stjórnvöld harðlega gagnrýnd.

Í yfirlýsingunni er talað um brottvísanir á börnum frá íslandi tekin fyrir, en þá mál hafa verið áberandi í umræðunni seinustu daga.

„Mikil samstaða er á milli ráðanna sem standa að þessari yfirlýsingu um að brottvísanir barna til Grikklands, þar sem þau hafa fengið alþjóðlega vernd en hafa þrátt fyrir það leitað til Íslands, þurfi að hætta og sömuleiðis brottvísanir fjölskyldna með börn.“

Síðan eru skoðuð orð úr Barnasáttmálanum, en ungliðahreyfingarnar benda á að hann hafi sama gildi og önnur lög í landinu.

“Aðildarríki skulu virða og tryggja hverju barni innan lögsögu sinnar þau réttindi sem kveðið er á um í samningi þessum, án mismununar af nokkru tagi, án tillits til kynþáttar, litarháttar, kynferðis, tungu, trúarbragða, stjórnmálaskoðana eða annarra skoðana, uppruna með tilliti til þjóðernis, þjóðhátta eða félagslegrar stöðu, eigna, fötlunar, ætternis eða annarra aðstæðna.”

„Það sem barni er fyrir bestu skal ávallt hafa forgang þegar félagsmálastofnanir á vegum hins opinbera eða einkaaðila, dómstólar, stjórnvöld eða löggjafarstofnanir gera ráðstafanir sem varða börn.”

Segja aðstæður barnana ekki boðlegar

Ungliðahreyfingarnar benda á að mörg félagasamtök vilji meina að ekki sé verið að fylgja barnasáttmálanum eftir, og því um lögbrot að ræða.

„UNICEF á Íslandi og önnur félagasamtök hafa reynt að vekja athygli á því að aðstæður fyrir flóttabörn í Grikklandi eru ekki viðunandi og er það skoðun ráðanna að það sé alls ekki verið að gæta hagsmuna barna með því að vísa þeim þangað, heldur þvert á móti, en aðstæðum í Grikklandi hefur verið lýst sem ógnandi og ómannúðlegum. Þar er lítið aðgengi að grunnmenntun fyrir börn og lítill stuðningur í boði vegna fjölda flóttamanna.“

Segja stjórnvöldum að vernda börnin og gefa þeim tækifæri

Að lokum skora ungliðahreyfingarnar á íslensk stjórnvöld um að gera meira í málunum og hugsa um öll börn innan lögsögu Íslands.

„Hættum að synja börnum um tækifæri til að alast upp í öruggu umhverfi.
Stjórnvöld þurfa að virða Barnasáttmálann og tryggja að honum sé framfylgt svo réttindi barna á flótta séu ávallt tryggð.
Byrjum að taka Barnasáttmálann alvarlega, því börnin okkar og börnin sem hingað koma eru framtíð okkar og nútíð. “

„Ekkert segir jafnmikið um þjóðfélag eins og hvernig það sér um börnin sín og Ísland ætti að vera fremst í flokki hvað það varðar.
Barnasáttmálinn nær til allra barna innan lögsögu Íslands og ætti ekkert barn á Íslandi að þurfa óttast um hvar þau munu gista í næstu viku eða að óttast að fá ekki grunnmenntun eða vernd.
Við skorum á yfirvöld að taka til aðgerða og vernda börn á flótta eins og þeim ber skylda til, sama hvað það kostar!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fannst látinn við Háafoss

Fannst látinn við Háafoss
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar