Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, lætur ekki duga að hjóla í Útvarp Sögu og stjórnendur þar því nú hefur hann birt ljóð þar sem hann gerir grín að orðum Páls Magnússonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Páll sagði eftirminnilega á dögunum að Stundin væri „endaþarmur íslenskrar blaðamennsku“ en tilefnið var pistill Braga Páls Sigurðarsonar um landsfund Sjálfstæðisflokksins.
Ljóðið birtist á vef hljómsveitar Davíðs Þórs, Austurvígstöðvunum. Ljóðið má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:
„Sá sem nefnir sannleikann,“
segir hann
og af hneykslan sárri bærist barmur,
„er blaðamennsku endaþarmur.“
Breiðum yfir, bælum, lokum
byrgjum inni, sveipum þokum
að frjálshyggjunnar fúla hít
er full af skít.
„Sá sem glæpum greinir frá,“
hann grenjar þá
og af fögrum tárum flóir hvarmur,
„er fjölmiðlanna endaþarmur.“
Breiðum yfir, bælum, lokum … o.s.frv.
„Óvinur míns eðla flokks,“
hann emjar loks
og nú blasir við hans bitri harmur,
„er blaðamennsku endaþarmur.“
Breiðum yfir, bælum, lokum … o.s.frv.
Endaþarminn óttast hann
sem opnast kann
og sýna öllum innihaldið
sem okkur leyna reynir valdið.
Breiðum yfir, bælum, lokum … o.s.frv.
Okkur birtist eðlið sanna
auðmannanna
og um stund var lítill stauli og garmur
stjórnmálanna endaþarmur.
Breiðum yfir, bælum, lokum … o.s.frv.“