

Starfsmaður á hjúkrunarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum, kona, hefur verið dæmd í skilorðsbundið fangelsi fyrir að nota debetkort vistmanns með vitræna skerðingu. Kortið notaði hún bæði hér á landi og í sumarfríi í Portúgal.
Konan var dæmd í Héraðsdómi Vestfjarða þann 6. maí síðastliðinn. En hún hafði játað brot sín.
Eins og segir í dóminum var hún dæmd fyrir umboðssvik og að misnota aðstöðu sína sem starfsmaður á hjúkrunarheimilinu Barmahlíð. En það er lítið hjúkrunarheimili á Reykhólum í Reykhólahreppi á sunnanverðum Vestfjörðum með rými fyrir 16 vistmenn.
Tók hún debetkort af vistmanni sem er með vitræna skerðingu, vangetu til að átta sig á fjármálum og háður konunni um þjónustu og notaði það í eigin þágu í 48 skipti, frá 7. júní til 25. júlí árið 2023. Tók hún út vörur og þjónustu fyrir alls rúma 1,2 milljón krónur.
Notaði hún kortið meðal annars til þess að kaupa sér pizzu, fara í sund, fara í klippingu, kaupa áfengi, húsgögn og djúpsteiktan kjúkling á KFC. Þá sést að sumar færslurnar eru gerðar erlendis, meðal annars í fríhöfninni í Porto í Portúgal og má því ætla að hún hafi farið á spreðerí með kort vistmannsins þar í landi.
Eftir að málið komst upp hefur vistmaðurinn verið sviptur fjárræði. Gerði lögmaður skaðabótakröfu á hendur starfsmanninum fyrir hans hönd. Það er fyrir 1,2 milljónir króna auk vaxta og málskostnaðar.
Dómari leit til skýlausrar játningar konunnar en hún hafði engan sakaferil sem hafði áhrif á refsingu hennar í málinu.
Hlaut hún þriggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára. Var henni gert að greiða vistmanninum 1,2 milljónir króna auk vaxta og 350 þúsund krónur í málskostnað og tæplega 250 þúsund krónur í þóknun skipaðs verjanda síns.
Færslurnar eru eftirfarandi:
Nr. Dags. Skýring greiðslu Móttakandi Upphæð
1 25.7.2023 Úttekt með debetkorti Lyfja Hofn -11.410
2 25.7.2023 Úttekt með debetkorti Vinbudin Hofn -7.896
3 25.7.2023 Úttekt með debetkorti HUSGAGNAVAL -7.990
4 25.7.2023 Úttekt með debetkorti Z-Bistro -7.470
5 25.7.2023 Úttekt með debetkorti Sundlaug Hornafjardar -2.300
6 24.7.2023 Úttekt með debetkorti OLIS HELLU -9.934
7 24.7.2023 Úttekt með debetkorti KR Vik -18.931
8 24.7.2023 Úttekt með debetkorti N1 Kirkjubaejarklaustur -1.290
9 24.7.2023 Úttekt með debetkorti BC Pizza -6.920
10 24.7.2023 Úttekt með debetkorti Icewear Vik i Myrdal -12.456
11 24.7.2023 Úttekt með debetkorti Netto Borgarnesi -15.449
12 24.7.2023 Úttekt með debetkorti N1 Artunshofdi -710
13 24.7.2023 Úttekt með debetkorti Hagkaup Spongin -8.528
14 24.7.2023 Úttekt í hraðbanka Arion ATM 036074 -30.295
15 24.7.2023 Úttekt með debetkorti Bruarsport ehf. -24.370
16 21.7.2023 Úttekt með debetkorti Krambudin Holmavik -1.277
17 21.7.2023 Úttekt með debetkorti Ikea -8.340
18 21.7.2023 Úttekt með debetkorti Extraloppan -22.000
19 21.7.2023 Úttekt með debetkorti N1 Haholt -6.320
20 21.7.2023 Úttekt með debetkorti Olis Borgarnesi -948
21 21.7.2023 Úttekt með debetkorti Ikea -175
22 21.7.2023 Úttekt með debetkorti KFC Haholt -3.106
23 19.7.2023 Úttekt með debetkorti Krambudin Holmavik -1.336
24 17.7.2023 Úttekt með debetkorti AERO FOOD -3.272
25 17.7.2023 Úttekt með debetkorti SUNGLASS HUT -166.286
26 17.7.2023 Úttekt með debetkorti N1 Artunshofdi -2.291
27 17.7.2023 Úttekt með debetkorti PORTO DFS WALKTHROUG -38.341
28 17.7.2023 Úttekt með debetkorti PORTO DFS WALKTHROUG -8.382
29 17.7.2023 Úttekt með debetkorti Foot Locker-Artigos Desp -34.375
30 17.7.2023 Úttekt með debetkorti Foot Locker-Artigos Desp -15.092
31 17.7.2023 Úttekt með debetkorti SPORT ZONE -13.519
12.7.2023 Gjald vegna hraðbankaúttektar -852
32 12.7.2023 Úttekt í hraðbanka RUA DO LOUREIRO 104 -85.185
33 12.7.2023 Úttekt með debetkorti MARQUES SOARES SA -45.743
11.7.2023 Gjald vegna hraðbankaúttektar -832
34 11.7.2023 Úttekt með debetkorti SUNGLASS HUT -36.465
35 11.7.2023 Úttekt með debetkorti MAIS OPTICA SUCURSAL EM P -66.814
36 11.7.2023 Úttekt í hraðbanka Loja Santa Catarina 524 -83.182
37 11.7.2023 Úttekt með debetkorti PERFUMES ECOMPANHIA -67.823
38 10.7.2023 Úttekt með debetkorti PURO PORTO HOTEL -34.846
39 5.7.2023 Úttekt í hraðbanka Arion ATM 033974 -110.580
40 27.6.2023 Úttekt í hraðbanka Arion ATM 036074 -30.295
41 27.6.2023 Úttekt í hraðbanka Arion ATM 036074 -50.295
42 26.6.2023 Úttekt í hraðbanka Arion ATM 031292 -50.295
43 26.6.2023 Úttekt í hraðbanka Arion ATM 031292 -50.295
44 12.6.2023 Úttekt með debetkorti Wolt -7.195
45 12.6.2023 Úttekt með debetkorti Wolt -9.658
46 12.6.2023 Úttekt með debetkorti Wolt -6.928
47 12.6.2023 Úttekt með debetkorti WWW.ZOLOICELAND.IS -474
48 7.6.2023 Úttekt með debetkorti Harsnyrtistofa Heidu -3.000