fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Fréttir

Skallaði mann á sjómannadagsballi á Patró

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 15. maí 2026 19:30

Árásin átti sér stað fyrir utan félagsheimilið á Patreksfirði þar sem Beggi í Sóldögg lék fyrir dansi. Mynd/Ja.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ungur maður hefur verið dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir að skalla annan fyrir utan félagsheimili á Patreksfirði. Fékk hinn slasaði áverka á nefi og vör.

Dómurinn féll í Héraðsdómi Vestfjarða í dag, 15. maí. Var maðurinn, sem er á 23. ári, dæmdur til 30 daga fangelsis, en skilorðsbundið til tveggja ára.

Atvikið átti sér stað fyrir utan félagsheimilið á Patreksfirði aðfaranótt 30. maí árið 2025. En þar var ball með Begga í Sóldögg í tilefni sjómannadagsins.

Réðist hinn ungi maður á annan og skallaði í andlitið eins og segir í dóminum. Hlaut brotaþoli eymsli og væg bólgumerki við nefrót, báðu megin nasar, blæddi úr og hlaut bólgu og sár í efri vör og nokkuð mar í munnslímhúð á innanverðri efri vör.

Hættuleg árás

Játaði maðurinn brot sitt skýlaust og var málið því tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu. Var litið til játningar við ákvörðunar refsingar sem og ungs aldurs hans.

„Hins vegar verður ekki litið fram hjá því að ákærði réðist fyrirvaralaust og að tilefnislausu á brotaþola og beindist árásin að höfði brotaþola,“ segir í dóminum.

Varð brotaþoli ekki fyrir varanlegum afleiðingum vegna árásarinnar en hún var engu að síður hættuleg.

Auk fangelsisrefsingar var hinn ungi maður dæmdur til að greiða brotaþola 150 þúsund krónur í bætur ásamt vöxtum og 200 þúsund krónur í málskostnað. Þá þarf hann einnig að greiða rúmlega 260 þúsund krónur í annan sakarkostnað, sem samanstendur að mestu að þóknun skipaðs verjanda síns.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Hvetur Valtý til að fara í meiðyrðamál við sig því þá muni sannleikurinn í Geirfinnsmálinu koma fram

Hvetur Valtý til að fara í meiðyrðamál við sig því þá muni sannleikurinn í Geirfinnsmálinu koma fram
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Þóra Kristín sér fyrir sér þetta samstarf í Reykjavík eftir kosningar – Ekki eru allir sannfærðir

Þóra Kristín sér fyrir sér þetta samstarf í Reykjavík eftir kosningar – Ekki eru allir sannfærðir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Össur segir Björgu daðra við Miðflokkinn – „Viðreisn ætlar sér greinilega að vinna til hægri í borgarstjórn“

Össur segir Björgu daðra við Miðflokkinn – „Viðreisn ætlar sér greinilega að vinna til hægri í borgarstjórn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir það dylgjur hjá Kristrúnu og Degi að Sjálfstæðismenn ætli að selja Orkuveituna

Segir það dylgjur hjá Kristrúnu og Degi að Sjálfstæðismenn ætli að selja Orkuveituna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fær ekki dýra og bráðnauðsynlega augnaðgerð endurgreidda – Aðeins einn læknir á landinu gat framkvæmt hana

Fær ekki dýra og bráðnauðsynlega augnaðgerð endurgreidda – Aðeins einn læknir á landinu gat framkvæmt hana
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“