fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Vilja son Trump í fremstu víglínu – Fjórir bandarískir hermenn dauðir

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 2. mars 2026 18:40

Fjöldi fólks kallar eftir því að Barron Trump fari á víglínuna. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti er sakaður um að tala léttvæglega um líf bandarískra hermanna. Að minnsta kosti fjórir hafa dáið eftir að Bandaríkjamenn hófu í samfloti við Ísraela árásir á Íran. Er Trump hvattur til að senda son sinn Barron á fremstu víglínu.

#SendBarron er eitt heitasta myllumerkið á samfélagsmiðlum í dag eins og breska dagblaðið The Independent greinir frá. Með því kalla margir netverjar á Donald Trump Bandaríkjaforseta að senda son sinn Barron á fremstu víglínuna í stríðinu við Íran.

Þá hefur einnig verið sett á fót heimasíða um herkvaðningu Barron, það er draftbarrontrump.com. En það er einn af handritshöfundum teiknimyndaseríunnar South Park sem stendur að baki henni.

Að minnsta kosti fjórir bandarískir hermenn hafa dáið í stríðinu og fleiri eru alvarlega særðir. En Íranir hafa svarað loftárásum Bandaríkjanna með því að varpa sprengjum á bandarískar herstöðvar í Persaflóa.

Hefur forsetinn verið sakaður um að meta líf bandarískra hermanna lítils. Meðal annars sagði hann þetta vera „óumflýjanlegan hluta af stríði“ og að dánartalan „myndi hækka talsvert“. Í sömu ræðu talaði hann mikið um endurbætur sínar á dansherbergi Hvíta hússins.

Velta margir því fyrir sér hvort hann myndi tala með sama hætti ef 19 ára sonur hans væri í fremstu víglínu. Eða þá hvort hann hefði byrjað þetta stríð yfir höfuð?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Fréttir
Í gær

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova