fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Fréttir

Langvarandi nágrannaerjur í Laugardal halda áfram – „Mjög íþyngjandi fyrir okkur“

Jakob Snævar Ólafsson
Fimmtudaginn 19. mars 2026 11:30

Frá Laugardal. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Enn á ný hefur verið lögð fram kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna langvarandi deilna milli nágranna í Laugardalshverfi í Reykjavík. Er annar nágranninn verulega ósáttur við framkvæmdir á lóð hins meðal annars þar sem hann telur framkvæmdirnar valda vatnsleka yfir á sína lóð. Má rekja málið aftur til ársins 2023. Hinn ósátti nágranni hefur ítrekað lagt fram kæru til nefndarinnar, sem alls hefur úrskurðað sex sinnum vegna málsins, og hafði betur á þeim forsendum að engin grenndarkynning hafði farið fram. Nú hefur hann hins vegar lagt fram nýja kæru vegna frekari tafa sem orðið hafa á málinu.

Málið snýst í stuttu máli um deilur vegna byggingu pergólu og uppsetningu á heitum potti á verönd. Kærði hinn ósátti nágranni einnig að leyfi hefði verið veitt fyrir byggingu steypts stoðveggs á lóðamörkum lóðar nágrannans og lóðar sem er fyrir aftan hús þeirra beggja. Segir ósátti nágranninn meðal annars að vegna framkvæmdanna hafi vatn lekið niður á hans lóð.

Nýr kafli í langvarandi nágrannaerjum í Laugardal – Krefur borgina um svör eftir tveggja ára stapp

Byggingarfulltrúi Reykjavíkur veitti leyfi fyrir framkvæmdunum eftir að þær voru yfirstaðnar en nefndin hafði komist að þeirri niðurstöðu eftir kæru nágrannans ósátta að þær væru leyfisskyldar. Hann kærði síðan byggingarleyfið á þeim forsendum að engin grenndarkynning hefði farið fram og nefndin úrskurðaði honum í vil og felldi leyfið úr gildi.

Engin lok

Leyfið var fellt úr gildi í febrúar á síðasta ári. Grenndarkynning var birt í skipulagsgátt í júlí, en það var ekki gert fyrr en ósátti nágranninn hafði leitað til umboðsmanns Alþingis og sendi hann inn ítarlega athugasemd, í 11 liðum, og krafðist þess að umsókn um byggingarleyfi yrði hafnað og að nágranna hans gert að fjarlægja stoðvegginn, heita pottinn og pergóluna. Var vísað meðal annars til vatnsleka, slysahættu, ónæðis, þess að nágranninn hafi veitt rangar upplýsingar um framkvæmdirnar og skerts útsýnis.

Í nóvember þegar ekkert bólaði á niðurstöðum frá borginni vegna grenndarkynningarinnar lagði hinn ósátti nágranni fram nýja kæru.

Eftir að sú kæra var lögð fram bárust svör frá Reykjavíkurborg við athugasemdunum og því var kæran dregin til baka. Nú hefur ósátti nágranninn hins vegar lagt fram kæru að nýju vegna dráttar á afgreiðslu málsins. Minnt er á í nýju kærunni að  fyrst hafi verið gerðar athugasemdir til byggingarfulltrúa í júlí 2023 vegna framkvæmdanna og marg oft síðan. Segir síðan í kærunni:

„Þessi tími og orka sem fer í að reyna að fá skipulagsyfirvöld í Reykjavík til að framkvæma lögbundna starfsskyldu sína eru mjög íþyngjandi fyrir okkur.“

Segist kærandinn telja að Reykjavíkurborg sé ítrekað að brjóta ákvæði stjórnsýslulaga um málshraða.

Eru að bíða

Reykjavíkurborg hefur lagt fram greinargerð vegna málsins. Þar segir að athugasemdum hins ósátta nágranna við grenndarkynninguna hafi verið svarað með umsögn skipulagsfulltrúa í desember.

Í umsögninni segir að ekki séu gerðar skipulagslegar athugasemdir við að byggingarleyfi sé útgefið fyrir umræddri framkvæmd en þó þurfi að gera óverulegar breytingar á uppdráttum til þess. Leiðrétta þurfi staðsetningu stoðveggjar í samræmi við raunverulega staðsetningu hans sem og fjarlægja bílastæði af uppdrættinum þar sem grenndarkynnt byggingarleyfi taki ekki til þeirra.

Umhverfis- og skipulagsráð borgarinnar veitti samþykki sitt fyrir framkvæmdunum í kjölfarið með þeim breytingum sem skipulagsfulltrúinn lagði til.

Segir í greinargerðinni að grenndarkynningunni sé því lokið og hafi umsókn um framkvæmdaleyfi nú verið send aftur til meðferðar hjá byggingarfulltrúa. Byggingarfulltrúi hafi tekið málið fyrir á fundi í janúar síðastliðnum og frestað afgreiðslu meðan beðið sé nýrra teikninga en þær hafi ekki enn borist embættinnu.

Telur borgin að í ljósi þessar stöðu málsins eigi að vísa þessari nýjustu kæru í málinu frá þar sem ekki liggi fyir nein kæranleg ákvörðun og þar með geti úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála ekki úrskurðað um kæruna.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Stjórnandi Facebook-hópsins stígur fram í máli Péturs Gauts – „Tilgangurinn er alls ekki að taka fólk af lífi“

Stjórnandi Facebook-hópsins stígur fram í máli Péturs Gauts – „Tilgangurinn er alls ekki að taka fólk af lífi“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Verk og vit hefst á morgun

Verk og vit hefst á morgun
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Blaðamaður Morgunblaðsins harðneitar ásökunum Dags – „Hún skellti upp úr og neitaði því“

Blaðamaður Morgunblaðsins harðneitar ásökunum Dags – „Hún skellti upp úr og neitaði því“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“