fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fréttir

Leggur til að eldri borgarar fái frístundastyrk eins og börnin

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 17. mars 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ef Reykjavík á að vera góður staður til að eldast á þarf borgin að skapa raunveruleg tækifæri fyrir eldri fólk til að vera virkir þátttakendur í samfélaginu,” segir Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, í aðsendri grein á Vísi.

Framsókn mun í dag leggja fram tillögu í borgarstjórn um frístundastyrk fyrir íbúa sem eru 67 ára og eldri.

Magnea vísar í orð nóbelsverðlaunahafans George Bernard Shaw sem sagði eitt sinn að við hættum ekki að leika okkur vegna þess að við eldumst, heldur eldumst við vegna þess að við hættum að leika okkur.

„Í þessari setningu felst ákveðin viska. Þegar við prófum nýja hluti, hreyfum okkur og förum út fyrir þægindarammann höldum við bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Það gildir ekki síður á efri árum en þeim yngri,“ segir hún í grein sinni.

48 þúsund krónur á ári

Magnea segir að tillagan sé í raun einföld og í henni felist að borgin styrki þátttöku eldri borgara í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi sem stuðlar að heilsu og hreysti.

„Styrkurinn yrði 4.000 krónur á mánuði, eða allt að 48.000 krónur á ári, og gæti nýst hjá félögum og viðurkenndum aðilum sem bjóða upp á þjálfun eða kennslu. Sund, dans, líkamsrækt, gönguhópar eða jóga. Allt það sem fær fólk til að hreyfa sig og hitta aðra.“

Magnea segir að hugmyndin sé sú að styrkurinn yrði tekjutengdur og miða tekjurnar við tekjumörk þeirra sem fá 50% afslátt á fasteignagjöldum.

„Þannig myndi styrkurinn fyrst og fremst nýtast þeim sem hafa minnst á milli handanna og er styrknum ætlað að jafna tækifæri til þátttöku í heilsueflandi starfi.“

Ávinningur fyrir allt samfélagið

Magnea segir að ávinningurinn sé þó ekki aðeins fyrir einstaklinginn heldur samfélagið allt. Þegar fólk haldi áfram að vera virkt og hreyfa sig auki það lífsgæði sín og heilsu.

„Slík virkni getur dregið úr álagi á heilbrigðiskerfið og heimaþjónustu, því fólk viðheldur sjálfstæði sínu og hreysti lengur. Frístundastyrkur fyrir eldri borgara er því ekki aðeins stuðningur við einstaklinga, hann er líka skynsamleg fjárfesting í lýðheilsu.“

Magnea bendir á að nokkur sveitarfélög hafi tekið upp sambærilega hvata til að efla þátttöku eldri íbúa í heilsueflandi starfi með góðum árangri. Engin ástæða sé fyrir Reykjavíkurborg að vera eftirbátur annarra sveitarfélaga í þessu máli.

„Framsókn vill að Reykjavík verði besti staðurinn til að eldast á. Það gerist ekki aðeins með góðri þjónustu heldur einnig með því að skapa tækifæri til virkrar þátttöku, hreyfingar og félagslegra tengsla.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Vilhjálmur mjög ósáttur við Sigurjón: „Þetta er ein ósmekklegasta færsla sem ég hef séð lengi“

Vilhjálmur mjög ósáttur við Sigurjón: „Þetta er ein ósmekklegasta færsla sem ég hef séð lengi“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Baldvin hefur áhyggjur af því að móðir hans kemur heim í dag – „Allir benda hver á annan“

Baldvin hefur áhyggjur af því að móðir hans kemur heim í dag – „Allir benda hver á annan“
Fréttir
Í gær

„Þá hefur þú annars vegar hann, og hins vegar mig sem litla stúlku sem hafði ekki nokkurn möguleika á því að verjast“

„Þá hefur þú annars vegar hann, og hins vegar mig sem litla stúlku sem hafði ekki nokkurn möguleika á því að verjast“
Fréttir
Í gær

Yfirmenn miðasölufyrirtækis gerðu grín að kaupendum sínum – „Þetta fólk er svo heimskt“

Yfirmenn miðasölufyrirtækis gerðu grín að kaupendum sínum – „Þetta fólk er svo heimskt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fögnuðu nafninu Kalon

Fögnuðu nafninu Kalon