fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Fréttir

Rannsókn á brunanum í Gufunesi lokið – Hleðslutæki líklegur sökudólgur

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 10. mars 2026 13:55

Skjáskot úr beinni útsendingu Vísis þann 12. janúar síðastliðinn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á brunanum í vöruskemmu við Gufunesveg í Reykjavík þann 12. janúar síðastliðinn er lokið.

Samkvæmt niðurstöðu eldsupptakarannsóknar tæknideildar lögreglu er talið líklegast að eldsupptök hafi orðið út frá hleðslutæki fyrir lyftara, en tveir lyftarar voru í sambandi og hleðslu þegar eldurinn kviknaði.

Engin merki fundust um íkveikju eða gáleysi með eldhvetjandi efni.

Mikill eldur logaði í skemmunni og sást reykurinn víða á höfuðborgarsvæðinu. Voru íbúar í nágrenninu hvattir til að loka gluggum. Skemman sem um ræðir var í eigu Reykjavíkurborgar og hafði fyrirtækið True North haft hana til umráða þar sem geymdir voru leikmunir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Egill spyr hvort hægt sé að sækja um hæli til að losna við ESB-umræðuna

Egill spyr hvort hægt sé að sækja um hæli til að losna við ESB-umræðuna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigurður Ingólfsson er látinn

Sigurður Ingólfsson er látinn