fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Fréttir

Nýir eigendur að Hamborgarafabrikkunni

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 10. mars 2026 14:30

Mynd: Já.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Félagið Hringanes ehf. hefur selt Hamborgarafabrikkuna úr rekstri sínum. Þetta staðfestir María Rún Hafliðadóttir, framkvæmdastjóri Hringaness, í samtali við DV.

Nýr eigandi er félagið Sjófang, sjávarútvegsfyrirtæki sem hefur verið í rekstri frá árinu 1958 og er með kennitölu frá árinu 1969. Eigandinn, Jón Örn Jakobsson, segir í samtali við DV, að daglegur rekstur verði í höndum tengdasonar hans og dóttur. Það eru þau Álvaro Montenegro og verðlaunarkitektinn Hulda Jónsdóttir hjá stofunni HJARK.

Álvaro segir í stuttu spjalli við DV að þau hjónin séu rétt að ná áttum í rekstrinum enda stutt síðan kaupin gengu í gegn. Hamborgarafabrikkann, sem þeir Sigmar Vilhjálmsson og Jóhannes Ásbjörnsson stofnuðu árið 2010 og ráku með miklum glæsibrag, má muna sinn fífil fegurri, en aðeins er eftir einn veitingastaður í keðjunni, við Höfðatorg. Segir Álvaro að hann hafi upplifað er hann tilkynnti um kaupin á Facebook að margir töldu staðinn hafa verið lagðan niður.

Segir Álvaro að öll markaðssetning Hamborgarafabrikkunnar hafi legið niðri í langan tíma og fyrsta verkefni hans verði að bæta þar úr. Hann hefur mikla trú á staðnum og lýst afar vel á hverfið sem er hlaðið fjölbreyttum vinnustöðum.

Má búast við því að spennandi nýjungar verði kynntar í rekstri Hamborgarafabrikkunnar á næstu mánuðum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Kristján Már beið ósigur í fyrstu orrustunni gegn Reykjavíkurborg

Kristján Már beið ósigur í fyrstu orrustunni gegn Reykjavíkurborg
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Kynna til sögunnar nýja tryggingavernd hér á landi fyrir fólk í ofbeldissamböndum

Kynna til sögunnar nýja tryggingavernd hér á landi fyrir fólk í ofbeldissamböndum
Fréttir
Í gær

Birgitta Líf komin í nýtt starf – „Spennandi að fá tækifæri“

Birgitta Líf komin í nýtt starf – „Spennandi að fá tækifæri“
Fréttir
Í gær

Helmingur ungra bandarískra ferðamanna ljúga um þjóðerni sitt – Hundsa fyrirmæli og valda vandræðum á Íslandi

Helmingur ungra bandarískra ferðamanna ljúga um þjóðerni sitt – Hundsa fyrirmæli og valda vandræðum á Íslandi
Fréttir
Í gær

Þrír menn grunaðir um nauðgun á Akureyri í nótt

Þrír menn grunaðir um nauðgun á Akureyri í nótt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Egill spyr hvort hægt sé að sækja um hæli til að losna við ESB-umræðuna

Egill spyr hvort hægt sé að sækja um hæli til að losna við ESB-umræðuna