fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Lausn fundin vegna miðasölusvikanna – „Allt er gott sem endar vel“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 9. febrúar 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og DV greindi frá í gær steig kona að nafni Janjira Dagbjört fram og greindi frá því að maður hennar hefði orðið fyrir barðinu á svikahrappi sem þóttist vera að selja miða á rokkhátíðina Hellfoss sem stóð yfir á Selfossi um helgina. Nú hefur eigandi Hellfoss hins vegar gefið hjónunum tvo miða á hátíðina á næsta ári.

Dagbjört greindi frá því að maður hennar hafi að beiðni svikahrappsins lagt féð inn á PayPal reikning hans. Það hafi ekki verið um háa upphæð að ræða, 7.000 krónur en þau hjónin hafi viljað vara aðra við slíkum svikum. Hún segir þau hjónin gera sér fulla grein fyrir að um of mikla trúgirni hafi verið að ræða.

Dagbjört varar við óheiðarlegum miðasala – „Ekki leggja inn á þessa manneskju“

Rúnar Hroði Geirmundsson eigandi Hellfoss hefur hins vegar haft samband við DV og upplýst að þó nokkrir einstaklingar hafi bent honum á fréttina af þessum miðasölusvikum. Rúnar segist hafa haft samband við Dagbjörtu og gefið henni tvo miða á hátíðina á næsta ári. Þau hjónin fá því tækifæri til að fara á hátíðina eftir allt saman án þess að þurfa að láta meira fé af hendi rakna eða eins og Rúnar orðar það í skilaboðum til DV:

„Allt er gott sem endar vel.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”