fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Hafdís Björg safnar fyrir Sigríði systur sína: „Hún á ungt barn, drauma og líf sem hún vill halda áfram að lifa“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 9. febrúar 2026 20:30

Systurnar Hafdís Björg og Sigríður Ragna, og sú síðarnefnda á spítala.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hafdís Björg Kristjánsdóttir einkaþjálfari hefur sett af stað söfnun fyrir eldri systur sína, Sigríði Rögnu, sem tekst nú á við krabbamein í annað sinn. Í færslu þar sem Hafdís Björg greinir frá veikindum systur sinnar kemur fram að kostnaðurinn er orðinn meiri en fjölskyldan ræður við. Sigríður Ragna er búsett á Spáni og fær því enga aðstoð frá sjúkratryggingum. 

„Árið 2023 skrifaði ég söfnunarpóst fyrir elsku Hrönnina okkar, bestu vinkonu mína og betri helminginn minn sem þá var að berjast við krabbamein,“ byrjar Hafdís Björg færslu sína, en vinkona hennar Hrönn Sigurðardóttir atvinnumaður í Ólympíufitness lést 44 ára gömul í júní árið 2023.

„Aldrei bjóst ég við að setja saman aðra söfnun fyrir hina fyrirmyndina í mínu lífi, en hér erum við.

Því miður er lífið ekki alltaf sanngjarnt en við reynum öll að gera okkar besta til að takast á við þau verkefni sem koma, sama hversu bugandi þau eru.

Núna er Sigga systir mín að berjast við krabbamein í annað sinn.

Hún fær enga aðstoð frá sjúkratryggingum né öðrum tryggingum þar sem hún flutti til Spánar. Ísland bendir á Spán og Spánn á Ísland. Við höfum leitað ráða hjá lögfræðingi sem segir að það eina sem við getum gert sé að halda áfram að leggja út fyrir meðferðunum.

Núna eftir aðgerð þurfa læknar hennar að framkvæma sérstakt vefja-/genapróf á æxlinu. Þetta próf segir til um hvort lyfjameðferð muni raunverulega gagnast henni.

Þetta snýst um að velja rétta meðferð, með sem minnstum skaða og sem bestum lífsgæðum.“

Systurnar Hafdís Björg og Sigríður Ragna

„Sigga er móðir, listakona og hjarta fjölskyldunnar okkar.

Hún á ungt barn, drauma og líf sem hún vill halda áfram að lifa. Þetta próf gefur skýrleika og hugarró og hjálpar læknum að taka réttar ákvarðanir svo hún geti jafnað sig og verið sterk fyrir framtíðina.

Kostnaðurinn er orðinn meiri fjölskyldan ræður við ein og sér á þessum tímapunkti.

Því leita ég til ykkar og langar að biðja alla sem hafa tök á að styrkja hana í þessari baráttu því hver króna skiptir máli.

Ef þú getur ekki styrkt, þá hjálpar það ótrúlega mikið að deila þessum pósti áfram.“

Nafn: Sigríður Ragna Kristjánsdóttir

Kennitala: 011175-3179

Reikningsnúmer: 0101-26-101474

IBAN: IS030101261014740111753179

„Takk öll fyrir skilaboðin, stuðninginn, samstöðuna og kærleikann.

Litla systir, Hafdís Björg“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“