fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Dagbjört varar við óheiðarlegum miðasala – „Ekki leggja inn á þessa manneskju“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 8. febrúar 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður sem vildi kaupa miða á rokktónleikahátíðina Hellfoss, sem stendur yfir á Selfossi um helgina, lenti illa í óprúttnum aðila sem þóttist vera að selja miða á tónleikana. „Manninn minn langaði rosalega mikið að fara á Hellfoss á Selfossi. Þessi einstaklingur bauðst til að selja honum miða á hálfvirði þar sem hann var búinn að missa af fyrsta degi hátíðarinnar,“ segir Janjira Dagbjört, eiginkona mannsins.

Miðann fékk maðurinn aldrei en lagði inn á hinn falska miðasala í gegnum PayPal-greiðslukerfið. Þau hafa því ekki kennitölu aðilans sem lagt var inn á.

„Manneskjan vildi að maðurinn borgaði henni í gegnum PayPal. Ég þekki það ekki neitt, er ekki með það sjálf en maðurinn minn er með PayPal sem hann notar rosalega lítið. Mér fannst þetta gruggugt til að byrja með, vildi ekki að hann myndi gera þetta en hann vissi ekki betur, greyið, enda í fyrsta skipti sem hann gerir svona. Hann gerði mistök sem hann sér eftir og honum líður mjög illa yfir þessu. En þetta var ekki há upphæð, rúmlega sjö þúsund kall. En samt peningur og ömurlegt að lenda í þessu.“

Hinn óprúttni aðili fékk manninn til að leggja inn á sig sem náinn ættingi en samkvæmt skilmálum PayPal er ekki hægt að ógilda greiðslu og fá endugreitt ef greiðslan er merkt með þeim hætti.

„Ef þú gerir það geturðu ekki kært manneskjuna eða fengið PayPal til að borga þér til baka.“

Auk þess að ræða við DV um málið greindi Dagbjört frá því í Facebook-hópnum Brask og brall. Þar fær hún yfir sig mikla gagnrýni á þá trúgirni að leggja fé inn á ókunnuga manneskju. Dagbjört segir að maðurinn hennar geri sér fulla grein fyrir því að þetta hafi verið heimskulegt og hún þurfi ekki á slíkum athugasemdum að halda.

Nokkuð auðsýnilegt er þegar Facebook-aðgangur hins falska miðasala er skoðaður að þar er um falskan reikning að ræða enda er engin virkni inni á síðunni. Hins vegar er ljóst að fólk fellur iðulega í freistni fyrir lokkandi tilboðum og verður trúgjarnt. Niðrandi athugasemdir vegna slíkra mistaka geta fælt fólk frá því að greina frá svikum sem þessum, svikum sem mikilvægt er að vara við.

Þegar kannaðar eru upplýsingar um aðilann sem móttók greiðsluna á PayPal kemur upp eitthvað sem líkist klámsíðu. Hér er skjáskot millifærslunni á PayPal:

Dagbjört segist gera sér grein fyrir því að þau hjónin fái þessa peninga ekki til baka. En hún vill vara aðra við því að falla í sömu gryfju og ekki leggja inn fé hjá óþekktum aðilum þó að tilboðið sé freistandi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”