

Morgunblaðið greindi frá málinu í gær og er óhætt að segja að fréttin hafi vakið athygli.
Sjá einnig: Kurr á Landspítalanum eftir að Smjörva var skipt út fyrir Bertolli
Fram kom að nú væri boðið upp á ítalska viðbitið Bertolli, en það virðist ekki hafa fallið í kramið hjá starfsfólki. Hafa einhverjir starfsmenn tekið upp á því að koma með smjör að heiman.
Haft var eftir Andra Ólafssyni, samskiptastjóra Landspítalans, að ákvörðunin hefði verið tekin þar sem Bertolli væri töluvert ódýrara í innkaupum en íslenska smjörið. Þá væri Bertolli næringarlega betur samsett vara með lægra hlutfalli mettaðrar fitu og hærra hlutfalli ómettaðrar fitu.
Í Morgunblaðinu í dag er rætt við Ragnar Frey og gefur hann lítið fyrir röksemdir þeirra sem tóku ákvörðun um þetta.
„Þetta eru gjörunnin matvæli og mér finnst það koma spánskt fyrir sjónir að spítalinn sé að bjóða upp á slík matvæli,“ segir hann við blaðið og bætir við að Bertolli sé einfaldlega hert smjörlíki. „Mér finnst smjörlíki ekki vera til manneldis og ráðlegg engum að borða það.“
Bendir hann á að hlutfall ólífuolíu sé undir 10 prósentum og restin sé hreinsuð fræolía. Fyrir utan það sé Bertolli innflutt vara og kolefnissporið meira. Sjálfur telur Ragnar að smjörið sé hollt og spítalinn eigi að sjálfsögðu að kaupa íslenskt smjör og Smjörva.