fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 27. febrúar 2026 19:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fastus hefur afhent Brunavörnum Rangársýslu nýjan og öflugan dælubíl sem hefur nú þegar verið tekinn í notkun. 

Nýi dælubíllinn er á Scania undirvagni. Hann er með öflugu froðukerfi og öðrum mikilvægum búnaði fyrir slökkvilið. Dælubíllinn er meðal annars búinn dróna, reykköfunartækjum og 3000 lítra vatnstank, öflugum monitor á þaki bílsins með hitamyndavél sem er stýrður með þráðlausri fjarstýringu. Bíllinn er smíðaður hjá Egenes í Flekkefjord í Noregi. Allur búnaður í dælubílinn er frá Rosenbauer.

„Við hjá Fastus erum afar ánægð og stolt að afhenda þennan nýja dælubíl til Brunavarna Rangársýslu. Við unnum útboðið í samstarfi við Egenes í Noregi sem smíðar þessa bíla og hafa gert með góðum árangri í 30 ár. Fyrirtækið er þekkt fyrir góð og vönduð vinnubrögð. Við seljum búnað til slökkviliða hér á landi, ekki einungis bifreiðar, heldur einnig hjálma, galla, dælur og fleira,“ segir Ágúst G. Valsson, sölufulltrúi hjá Fastus heilsu.

Fastus afhenti einnig nýverið Slökkviliði Akureyrar nýjan Volkswagen Amarok. Bifreiðin er útbúin Poly Cafs froðukerfi frá Rosenbauer. Allar merkingar, forgangsljós og búnaður er settur upp af Egenes. Bifreiðin er bakvaktarbíll hjá Slökkviliði Akureyrar.

VW Amarok sem Slökkvilið Akureryar fékk afhentan nýverið.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“