fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Skipið sem var haldlagt suður af Íslandi flutt til Bandaríkjanna – Verður gert upptækt

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 19:30

Tankskipið Marinera.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verið er að flytja hið haldlagða tankskip Marinera til Bandaríkjanna þar sem það verður gert upptækt. Skipið er hluti af hinum svokallaða skuggaflota Rússa sem var að flytja olíu frá Venesúela til Rússlands.

Marinera komst í gegnum herkví Bandaríkjamanna við Venesúela í kringum áramótin. Skipið var elt norður Atlantshafið og loks náðist að stöðva það sunnarlega í landhelgi Íslands og tóku Bretar þátt í aðgerðinni. Var skipið svo flutt til Skotlands þar sem það hefur verið síðan þá.

Sjá einnig:

Rússneskur þingmaður vill sökkva bandarískum bátum út af haldlagningu tankskipsins Marinera

Rússar brugðust illa við og höfðu í hótunum við Bandaríkjamenn. Meðal annars lét þingmaðurinn Alexey Zhuravlev hafa eftir sér að rússneski sjóherinn ætti að sökkva nokkrum bandarískum landhelgisgæslubátum til að hefna fyrir haldlagningu tankskipsins. En skipið hefur verið notað í alls kyns smyglstarfsemi áður, meðal annars fyrir hryðjuverkasamtökin Hezbollah í Líbanon.

Marinera hefur verið geymt við Moray í norðurhluta Skotlands. Eins og kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC um málið þá verður skipið flutt inn í Ermasund og svo yfir Atlantshafið til Bandaríkjanna. Þar verður skipið gert upptækt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík kynntur – Regína í sjöunda sæti

Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík kynntur – Regína í sjöunda sæti
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skatturinn vildi vita hvaðan eigandi tælenskrar nuddstofu fékk alla þessa peninga – Hún sagðist bara vera svona heppin

Skatturinn vildi vita hvaðan eigandi tælenskrar nuddstofu fékk alla þessa peninga – Hún sagðist bara vera svona heppin