
Þrír menn sem ákærðir eru fyrir stórfelld skemmdarverk með því að hafa kveikt í Teslu-bifreið lögreglukonu við Rekagranda í ágústmánuði árið 2023, þurfa að koma aftur fyrir dóm, en réttað var yfir þeim síðasta haust. Málinu var þá vísað frá dómi.
Mennirnir þrír bera allir erlend nöfn en eru með íslenska kennitölu. Þeir eru á milli tvítugs og þrítugs en sá yngsti var þó aðeins 18 ára er atburðurinn átti sér stað. Samkvæmt heimildum DV eru mennirnir taldir vera í viðkvæmri stöðu í samfélaginu.
Einn mannanna er ákærður fyrir tilraun til að valda stórfelldum eignaspjöllum með því að hafa, gegn vilyrði um 100 þúsund króna greiðslu, skvett bensíni á bílinn og reynt að kveikja í honum. Það tókst ekki.
Það tókst hins vegar í annarri tilraun að kveikja í bílnum og fyrir þann verknað eru allir þrír mennirnir ákærðir, þ.e. fyrir stórfelld eignaspjöll. Einn fyrir að skipuleggja verkið, kaupa bensín og fá áðurnefnda manninn til þess, sá fékk síðan þriðja manninn með sér í verkið og tókst þeim að kveikja í bílnum sem eyðilagðist.
Einn sakborninganna er spænskur maður, fæddur árið 2002. Er hann var spurður hvort heimilisfang hans væri rétt í dómskjölum sagðist hann vera fluttur en þurfti að fletta upp í síma sínum eftir hinu nýja heimilisfangi.
Annar sakborninganna sækir ekki þing þar sem honum hefur verið vísað úr landi. Er hann arabískumælandi. Þriðji sakborningurinn var ekki mættur við upphaf þinghaldsins og mun ekki sitja þinghaldið en lögmaður hans situr það.
Réttað var yfir mönnunum í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 20. október árið 2025 og var blaðamaður DV viðstaddur. Er réttarhöldin höfðu staðið yfir í um hálftíma ákvað dómari að loka þinghaldinu að ósk verjanda eins mannanna þriggja. Blaðamaður DV óskaði eftir því að kæra ákvörðunina en dómari sagði hana ekki kæranlega, meðal annars vegna þess að ákvörðunin var tekin eftir að þinghald var hafið.
Hvorki aðrir verjendur né saksóknari lögðust gegn beiðninni. Verjandinn rökstuddi beiðnina með vísan til þess að loka bæri þinghaldinu til hlífðar sakborningi . Á fyrri stigum málsins hefðu ákærði og brotaþoli fengið neyðarhnapp að ákvörðun lögreglu vegna framburðar sem þau gáfu hjá lögreglu.
Mönnunum hefur nú verið birt ný ákæra, að mestu samhljóða þeirri fyrri. Verður málið þingfest fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur þann 5. mars næstkomandi.
Ástæðan fyrir þessu er sú að málinu var vísað frá dómi í haust vegna formgalla.