

Fjölmiðlamaðurinn Sigvaldi Kaldalóns, Svali, brá sér í Krónuna í gær og verslaði nokkra hluti sér til matars, svona eins og gengur og gerist daglega meðal landsmanna. Það var verðlagið sem fékk Svala til að staldra við, smella mynd og setja á samfélagsmiðla.
„5500 kall. Viðurkenni að mér finnst það alveg í meira lagi fyrir svona smáræði.“
Á myndinni eru eins og sjá má sjö vörur fyrir þessa upphæð, vörur sem duga í einn haldapoka.

Myndin vakti athygli og hafa 69 athugasemdir verið skrifaðar.
„Ég er gjörsamlega blekktur í gegn af þessum prísum. Veit ekki hvað er lítið og mikið lengur“, segir tónlistarmaðurinn Jógvan Hansen.
Einn bendir á að vörur í Krónunni séu krónu dýrari en í Bónus, sem annar gantast með að þess vegna heiti verslunin Krónan.
Kona ein bendir á að sömu vörur myndu kosta 3.100 kr. Í Danmörku. Karlmaður segir þær kosta 5.156 kr. Í Danmörku. Sem bendir til að vöruverð er greinilega mismunandi milli verslana þar í landi.
Einn spyr hverjir eigi matvöruverslanirnar hér:„ Eru það ekki lífeyrissjóðirnir sem eiga bæði Krónuna og Bónus? I gegnum Haga og Festi ?“
Eins og margir vita er Svali með annan fótinn á Tenerife eftir að hafa búið þar í nokkur ár, þar í landi er matarverð töluvert hagstæðara en hér.