fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Ekki aðeins á Íslandi sem sendiherrar Trump valda ólgu – Frakkar loka á Kushner

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 14:30

Kushner neitaði að mæta á fund og er nú kominn í bann. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Charles Kushner, sendiherra Bandaríkjanna í Frakklandi, mætti ekki á fund franskra yfirvalda og er kominn í bann. Óalgengt er að sendiherrar komi sér í slík vandræði en þetta er í annað skipti á stuttum tíma sem slíkt gerist í Evrópu. Nýlega olli Billy Long, sendiherra á Íslandi, ólgu þegar hann grínaðist með yfirtöku Íslands.

Charles Kushner, sem er faðir Jared Kushner tengdasonar Trump, mætti ekki á fund frönsku stjórnarinnar til að ræða ummæli Bandaríkjastjórnar sem tengdust máli Quentin Deranque, nýnasista sem var drepinn á mótmælum um þar síðustu helgi.

Í kjölfar málsins lýsti bandaríska utanríkisráðuneytið að „öfgafull og ofbeldisfull vinstrihyggja“ væri á uppleið í Frakklandi. Voru frönsk yfirvöld ekki sátt við þetta og kölluðu Kushner á teppið. Eftir að hann mætti ekki var ákveðið að setja hann í bann við að ræða við nokkurn fulltrúa franskra yfirvalda.

Sjá einnig:

Safnar undirskriftum gegn sendiherraefni Trump á Íslandi – „Við viljum ekki svona mann“

„Þegar hann er búinn að útskýra þetta þá fær sendiherra Bandaríkjanna í Frakklandi að tala við fulltrúa stjórnarinnar,“ sagði utanríkisráðherrann Jean-Noel Barrot. „Þangað til mun þetta bann hamla störfum Kushner í okkar landi.“

Eins og gefur að skilja er það afar óalgengt að sendiherra í ríki sem eigi að kallast vinaríki móðgi yfirvöld með þessum hætti. Það hefur þó gerst tvívegis á skömmum tíma því að nýverið móðgaði Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi Íslendinga með „gríni“ um að gera landið að 52. fylkinu. Þetta grín fór illa ofan í íslensk stjórnvöld, meðal annars út af hótunum Bandaríkjamanna í garð Kanada og Grænlands.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum