fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Ísland og Asóreyjar verði mögulega skotpallurinn fyrir árásir Bandaríkjanna á Íran

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 21. febrúar 2026 10:28

B-52 Stratofortress sprengjuflugvél. Mynd/Wikipedia

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Herstöðvar Bandaríkjahers á Íslandi og á Asóreyjum í Portúgal verða mögulega skotpallurinn fyrir árás langdrægra sprengjuflugvéla á Íran. Spennan á milli Bandaríkjanna og Íran heldur áfram að byggjast upp.

Útlit er fyrir að Bandaríkjaher geri árás á Íran á komandi misserum þó óljóst er hvert markmiðin með henni eigi að vera. En Trump hefur sagt að hann vilji valdaskipti í Íran og að Íranir hætti að auðga úran, sem hægt er að nota til kjarnorkuvopnagerðar.

Eins og segir í hernaðarfréttamiðlinum TWZ þá eru Bandaríkjamenn að velta fyrir sér að nota flugstöðvarnar í Keflavík og Lajes í Asóreyjum sem skotpallinn fyrir árásir  langdrægra sprengjuflugvéla. Það er B-2 Spirit og B-52 Stratofortress. Þó að Ísland og Asóreyjar séu langt frá Íran þá er drægni vélanna nógu löng fyrir slíkar sprengjuherferðir.

Annar flugvöllur sem kæmi til greina er Morón flugvöllur í suðurhluta Spánar. Bretar hafa hins vegar neitað að leyfa árásir á Íran frá herflugvöllum á sínu landsvæði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“