fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Viðsnúningur í Kiðjabergsmálinu – Áður sýknaður en nú sakfelldur og dæmdur í 10 ára fangelsi

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 16:35

Victoras birti myndband af sumarhúsinu sem hann var að vinna við. (Skjáskot).

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gedirninas Saulys hefur verið sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til þess að maður lét lífið í sumarhúsi í Kiðjabergi árið 2024. Þetta var niðurstaða Landsréttar sem dæmdi Gedirninas, sem kemur frá Litháen, í tíu ára fangelsi. Vísir greindi fyrst frá.

Verjandi Gedirninas segir í samtali við Vísi að þessi niðurstaða komi verulega á óvart og að málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar. Gedirninas var í ákæru gert að sök að hafa beitt samlanda sinn, Victoras Buchovski, margþættu ofbeldi sem beindist að höfði, hálsi og líkama. Fyrir vikið hlaut Victoras margþætta áverka en talið er að hann hafi látist vegna heilaáverka. Gedirninas neitar sök en viðurkennir að hafa löðrungað Victoras í tvígang svo hann féll af stól. Fyrir vikið var hann sakfelldur fyrir minni háttar líkamsárás og dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Málið kom upp í sumarhúsi í Kiðjabergi en þar fannst Victoras látinn, 36 ára að aldri, ásamt fleiri samlöndum sínum. Hópurinn hafði verið að störfum við framkvæmdir í sumarhúsinu við hliðina. Af vettvangi mátti ráða að mikið hefði gengið á í aðdraganda andlátsins og á líkinu mátti finna mikla áverka.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart