

Bæjarráð Ölfuss ákvað á fundi sínum í dag að bjóða öllum leikskólabörnum 36 tíma vistun foreldrum þeirra að kostnaðarlausu og án tillits til tekna. Frá þessu greinir bæjarstjórinn Elliði Vignisson í aðsendri grein hjá Vísi.
„Strax frá og með næstu mánaðamótum verða leikskólar í Ölfusi gjaldfrjálsir. Með ákvörðun sem var tekin á fundi bæjarráðs núna fyrr í dag mun öllum börnum standa til boða 36 tíma skólaganga foreldrum þeirra að kostnaðarlausu, án tillits til tekna þeirra. Án tekjutengingar. Sami stuðningur fyrir öll börn. Í almanna tali er það kallað „frítt“, þótt auðvitað falli kostnaðurinn á almannasjóð. Til að hægt sé að taka slíkar ákvarðanir þarf því traustan rekstur.“
Elliði segir að rekstur sveitarfélagsins hafi gengið vel síðustu ár, þar hafi risið öflug fyrirtæki og íbúum fjölgað. Samkvæmt útkomuspá fyrir árið 2025 mun rekstrarniðurstaðan skila rúmlega 1,3 milljarði í hagnað sem Elliði segir verulega umfram áætlun. Fjárhagsstaðan sé sterk miðað við stærð sveitarfélagsins sem skapi svigrúm til að fjárfesta í aukinni velferð þar sem ungt fólk og börn eru í forgrunni.
„Á sama tíma og Sveitarfélagið Ölfus mun áfram stuðla að hagstæðu íbúðaverði ætlum við einnig að bæta hag ungs fólks með börn eftir öðrum leiðum. Gjaldfrjáls leikskóli fyrir alla, óháð tekjum, er mikilvægur liður í þeirri stefnu.
Ákvörðun stjórnenda Ölfuss endurspeglar skýra sýn: að góður rekstrarárangur eigi að skila sér beint til íbúa í formi aukinnar þjónustu og bættra lífsgæða. Sterk fjárhagsstaða og vaxandi samfélag eru að skapa traustan grunn að áframhaldandi uppbyggingu í Sveitarfélaginu Ölfusi.“