fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Dóttir Júlíönu og vinkonur urðu fyrir óhugnanlegri reynslu við Smáralind – „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 11:37

Júlíana Sara Gunnarsdóttir í hlutverki sínu í sjónvarpsþáttunum vinsælu Venjulegt Fólk

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Júlíana Sara Gunnarsdóttir greinir frá óhuganlegri reynslu sem dóttir hennar og vinkonur urðu fyrir í gærdagsins. Dóttir hennar og vinkonur höfðu verið að skemmta sér í Smáralind og voru að ganga heim að lokinni öskudagsgleðinni.

„Þær voru stoppaðar af miðaldra manni sem var á gráum sendiferðabíl. Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn með því að segja þeim að hann ætti nóg af súkkulaði og nammi handa þeim. Sem betur fer neituðu þær því og drifu sig heim til einnar og sluppu þær því með skrekkinn,“ skrifar Júlíana Sara.

Hún segir að um mikið sjokk hafi verið að ræða fyrir stúlkurnar og þær allar verið skelkaðar eftir atvikið, sem tilkynnt var til lögreglu sem fékk greinargóðar lýsingar af atvikinu.

„Þetta var ofboðslega óþægileg en góð áminning fyrir okkur foreldra að fræða börnin okkar ef ske kynni að þau lendi í svona aðstæðum.
Svona fræðslur ættu líka allir skólar að hafa. Ég þakka bara Guði fyrir hugrekkið þeirra og að þetta hafi ekki farið ver. Höfum augun opin og fræðum börnin okkar. Það eru því miður til mjög lasnir einstaklingar sem gera umhverfið okkar ekki alveg hættulaust,“ skrifar leikkonan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“