fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Vill meiri innblöndun á Íslandi og skýtur á Miðflokkinn – „Hafa þegar tekið stefnuna upp í verki með sínu makavali“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 13:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks ákvað í hádeginu að gefa þjóð og landi óumbeðið ráð: Íslendingar eigi að stórauka blöndun sína við aðra menningarheima enda hafi slíkt gefið góða raun í gegnum aldirnar. Kristinn deilir þessu ráði sínu á Facebook og nýtir færir og skýtur á Miðflokkinn, en hann segir þó nokkra Miðflokksmenn þegar hafa lagt sitt af mörkum í blöndunarverkefninu mikla, að minnsta kosti ef miðað er við makaval þeirra.

Kristinn skrifar:

„Það laust niður í mig löngun til þess að gefa landinu aldeilis ókeypis og óumbeðið ráð. Þetta er því eins konar landráð og verði ég kallaður landráðamaður fyrir vikið, mun ég taka því í þeim skilningi. Ráðið er að við eigum að stórauka blöndun Íslendinga, okkur til framdráttar, bæði vegna menningarlegs ávinnings og líkamlegs. Það verður okkur hollt að hrista vel úr útlenskum kryddstaukum yfir íslensku súpuna.“

Wikileaks-ritstjórinn rekur að blöndin sé í raun rammíslensk stefna sem eigi sér rætur til landnámsins. Sérstaða Íslendinga á Norðurlöndum sé í raun blöndun okkar.

„Þetta er í raun rammíslensk og þjóðleg stefna sem á sér rætur frá upphafi landnáms . Sérstaða Íslendinga, vel umfram flestar aðrar norrænar þjóðir, felst í því að við erum frá upphafi blendingsþjóð. Hér mættust norræn og írsk eða keltnesk gen. Hið auðugasta í íslenskum menningararfi er ritlistin sem við getum þakkað írska arfinum. Án blöndunar ættum við engan ritaðan sagnaarf – engin handrit til að vera stolt yfir. Fyrir utan einstök orð og staðarheiti varð samt norræna tungan ríkjandi. Íslenskan varð ofaná en ef ekki hefði verið fyrir keltneskan menningarinnflutning ættum við ekki þessi bókmenntaverk á skinnum – rituð á íslensku. Með þessa forsögu í huga eigum við að stuðla að enn meiri innblöndun en við búum við í dag. Þannig verðum við ríkara og betra samfélag.“

Eins og áður segir skýtur hann á Miðflokkinn áður en hann lýkur færslunni á því að líkja læstum landamærum við myglað húsnæði.

„Ég er fullviss að þessi þjóðlega landnámsstefna í blöndun fær góðan hljómgrunn í Miðflokknum því það virðist sem afar margir stuðningsmenn og forystulið flokksins hafi þegar tekið stefnuna upp í verki með sínu makavali. Það er gott og hollt.

Sú stefna að loka og læsa vistarverum er ávísun á óloft, sagga, myglu og vanlíðan. Látum ekki Ísland mygla – opnum glugga og hleypum ferskum vindum til landsins. En fyrir alla muni verjum íslenskuna, okkar mikla djásn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“