fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Kjálkabraut mann með kjaftshöggi og situr uppi með feitan reikning

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Þá var honum gert að greiða fórnarlambi sínu bætur.

Samkvæmt ákæru átti árásin sér stað á ónefndum stað í Reykjavík föstudaginn 21. júní 2024. Kýldi maðurinn fórnarlamb sitt með krepptum hnefa í andlitið með þeim afleiðingum að viðkomandi hlaut brot á kjálka- og kinnbeini hægra megin í andliti.

Fórnarlambið krafðist ríflegra bóta vegna kjaftshöggsins, tæplega fjögurra milljóna króna.

Maðurinn neitaði sök við þingfestingu málsins í fyrrasumar, en rétt áður en aðalmeðferð fór fram fyrr í þessum mánuði breytti hann afstöðu sinni og játaði sök. Þá samþykkti hann bótaskyldu í málinu en mótmælti bótakröfunni sem of hárri.

Í niðurstöðu dómsins kemur fram að árásarmaðurinn eigi engan sakaferil að baki.

Niðurstaðan var 60 daga fangelsi og er dómurinn skilorðsbundinn til tveggja ára. Þá þótti hæfileg bótafjárhæð 600 þúsund krónur. Þar að auki var manninum gert að greiða málskostnað fórnarlambsins, 353.400 krónur, málsvarnarþóknun verjanda síns, 616 þúsund krónur og 105 þúsund krónur í annan sakarkostnað.

Samtals situr árásarmaðurinn því uppi með reikning upp á tæplega 1,7 milljónir króna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”