fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Tómas vann fullnaðarsigur fyrir Hæstarétti en situr uppi með sex milljóna króna málskostnað

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 16. febrúar 2026 12:30

Tómas Hilmar Ragnarz

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hæstiréttur hefur staðfest ákvörðun Landsréttar um að vísa frá héraðsdómi máli sem Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi höfðaði á hendur athafnamanninum Tómasi Hilmari Ragnarz. Frávísunin er á grundvelli þess að sendinefndin hafi ekki aðildarhæfi til að sækja mál gegn Tómasi. Hafa nú bæði Landsréttur og Hæstiréttur staðfest þetta.

Sendinefndin krafðist þess að Tómas yrði gerður persónulega ábyrgur fyrir skuld félags sem hann hafði áður stýrt. Málið tengist rekstri Orange Procject ehf, sem Tómas var í forsvari fyrir, en fyrirtækið, sem sérhæfði sig í útleigu á skrifstofurými, fór illa út úr samkomutakmörkunum Covid-tímans og varð gjaldþrota. Sendinefndi gerði kröfu um endurgreiðslu húsaleigutryggingarinnar og lýsti kröfu í þrotabúið. Ekki fékkst greiðsla upp í þessa kröfu við skiptin á þrotabúinu og gerði sendinefndin einkakröfu á Tómas.

Héraðsdómur féllst á kröfu sendinefndar ESB en Landsréttur og Hæstiréttur hafa nú báðir ómerkt þann dóm.

Bákn gegn borgurum

Þrátt fyrir þennan afdráttarlausa sigur situr Tómas uppi með sex milljóna króna málskostnað. Þar sem Tómas kærði ekki úrskurð Landsréttar fyrir sitt leyti þá kemur krafa hans um málskostnað í héraði og fyrir Landsrétti ekki til álita.

Tómas er hins vegar staðráðinn í að sækja þennan kostnað á ESB-sendinefndina, en hann segir í skilaboðum til DV:

„Ég fæ ekki borgaðan málskostnað sem ég er búinn að þurfa að leggja út fyrir, sem er upp á tæpar sex milljónir, til að verja mig fyrir þessu bákni gegn almennum borgurum. Starfsfólk sendinefndar ESB á Íslandi á þeim tíma sem þetta mál fór í gang og þeir aðilar sem byrjuðu á þessu máli verða látin borga þann kostnað sem ég hef þurft að bera persónulega vegna málsins. Það verður stefnt og farið með þetta alla leið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“