fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Fréttir

Flugvél á leið til Mexíkó gerði neyðarlendingu í Keflavík

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 16. febrúar 2026 14:30

Vélin var á leið frá Amsterdam til Mexíkóborgar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hollensk flugvél á leið til Mexíkó þurfti að gera neyðarlendingu í gær, sunnudag, vegna þess að farþegi þurfti á læknisaðstoð að halda. Ekki er vitað um líðan hans.

Eins og greint er frá í breska blaðinu The Mirror þá þurfti flugvél á vegum hollenska flugfélagsins KLM að gera neyðarlendingu á Keflavíkurflugvelli. Vélin var á leið frá höfuðborginni Amsterdam til Mexíkóborgar. Um er að ræða mjög langt flug, það er um tólf klukkutíma.

Vélin var búin að vera tvo tíma í loftinu þegar atvikið kom upp.

Eftir um það bil tveggja klukkutíma flug, um miðjan dag í gær, kom upp neyðartilvik í vélinni og var ákveðið að lenda á næsta flugvelli, sem var Keflavík.

Farþeginn var sóttur af sjúkraflutningamönnum og færður á sjúkrahús. Ekki er vitað um líðan hans. Bensíni var bætt við vélina og hún hélt áfram flugi sínu til Mexíkóborgar tæplega sex síðdegis í gær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skatturinn vildi vita hvaðan eigandi tælenskrar nuddstofu fékk alla þessa peninga – Hún sagðist bara vera svona heppin

Skatturinn vildi vita hvaðan eigandi tælenskrar nuddstofu fékk alla þessa peninga – Hún sagðist bara vera svona heppin
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dró að sér sjö milljónir í sumarstarfi hjá Happdrætti Háskóla Íslands

Dró að sér sjö milljónir í sumarstarfi hjá Happdrætti Háskóla Íslands