fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Óskemmtileg sjón mætti fulltrúum MAST: „Nokkrir kattanna reyndust dauðir“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 13. febrúar 2026 10:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Matvælastofnun hefur birt yfirlit yfir stjórnvaldsákvarðanir í dýravelferðarmálum í nóvember og desember 2025 og janúar 2026. Kettir, hundur og nautgripir komu meðal annars við sögu og var sektum beitt í nokkrum málum.

Hér að neðan má sjá yfirlitið frá MAST:

Vörslusvipting á ketti

Ill meðferð á ketti sem stefndi lífi hans í hættu. Ákveðið var að fjarlægja köttinn af heimilinu.

Dagsektir báru árangur

Lagðar voru dagsektir að upphæð 10.000 kr. á dag á nautgripabónda vegna frávika varðandi bása og hreinleika gripa. Áður en til innheimtu kom bætti bóndinn úr þannig að dagsektirnar voru felldar niður.

Dagsektir ákvarðaðar

Lagðar voru dagsektir að upphæð 7.500 kr. á dag á nautgripabónda vegna skorts á klaufhirðu. Einnig vegna ófullnægjandi brynningar og hönnunar á rými.

Dagsektir báru árangur

Lagðar voru dagsektir að upphæð 10.000 kr á dag. á nautgripabónda vegna ýmissa frávika, þar á meðal ófullnægjandi brynningar. Áður en til innheimtu kom bætti bóndinn úr þannig að dagsektirnar voru felldar niður.

Vörslusvipting á ketti

Umráðamaður kattar samþykkti að hann yrði fjarlægður varanlega af heimilinu slæms aðbúnaðar.

Stjórnvaldssekt

Nautgripabóndi sektaður um 288.000 kr. vegna þess að hann batt naut á bása sem er bannað skv. reglugerð. Nautgripi má einungis binda sé þess þörf á meðan þeir eru meðhöndlaðir eða um sé að ræða kvígur sem eiga minna en þrjá mánuði í burð.

Vörslusvipting á hundi

Umráðamenn hunds voru sviptir vörslum á hundinum í kjölfar heimsóknar lögreglu á heimilið sem leiddi í ljós heilsuspillandi íbúð, slæman aðbúnað og ófullnægjandi umönnun á hundinum.

Dagsektir ákvarðaðar

Dagsektir að upphæð 10.000 kr. á dag lagðar á nautgripabónda til að knýja hann til úrbóta á velferð dýranna.

Stjórnvaldssekt

Fuglasláturhús sektað um 144.500 kr. vegna brota á velferð fugla við aflífun. Ekki var brugðist rétt við við óvæntu rafmagnsleysi við slátrun sem leiddi til ófullnægjandi umhirðu fugla á sláturlínu.

Vörslusvipting á hluta nautgripahjarðar

Eftir árangurslausar dagsektir til að knýja nautgripabónda til úrbóta á velferð gripanna var gripið þess ráðs að fjarlægja öll kvendýr og ungviði úr hjörðinni.

Vörslusvipting á köttum

Eigandi margra katta fór í margra vikna ferðalag til útlanda og fól öðrum að annast kettina á meðan. Í kjölfar ábendingar fór MAST á staðinn. Nokkrir kattanna reyndust dauðir en aðrir voru fjarlægðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“