fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Árni Stefán nennti ekki á bráðamóttökuna og lét dýralækni sauma sárið

Ritstjórn DV
Föstudaginn 13. febrúar 2026 10:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árni Stefán Árnason dýraverndarlögfræðingur tók til sinna ráða á dögunum þegar hann varð fyrir slysi og fékk stórt blæðandi sár á handlegginn.

Árni Stefán lýsir þessu í aðsendri grein á Vísi þar sem hann tekur undir áhyggjur manna af slæmu ástandi á bráðamóttöku Landspítalans. „Stjórnleysi ríkisstjórnarinnar virðist algert,“ segir hann.

Hann segir að eftir slysið hafi hann ekki nennt á bráðamóttökuna til að bíða þar alla nóttina eftir að sárið yrði saumað. Brá hann því á það ráð að skella sterku límbandi á það í þrjá daga.

„Í göngutúr gekk ég fram á dýralækni sem ég kannast við og tókum við spjall en ég þekki nokkuð marga dýralækna á Íslandi vegna dýrahalds og áhuga á dýravernd.

Ég nefndi sárið. Hann sagði sýndu mér. Ég sýndi honum og hann sagði: hittu mig eftir klst. tökum kaffibolla og ég sauma þetta og geng frá svo þér líði betur,” segir Árni og til að gera langa sögu stutta er sárið nú gróið.

Árni Stefán segir í grein sinni að stjórnarfar á Íslandi undir stjórn núverandi ríkisstjórnar sé komið út fyrir öll velsæmismök og lýðheilsu sé ógnað. Tekur hann undir orð Sigurðar Sigurðssonar sem skrifaði nýlega grein á Vísi þar sem hann sagði að við kynnum einfaldlega ekki að reka samfélag, sama hvaða flokkar stjórna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”