

Tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson mætti í Héraðsdóm Reykjaness í morgun við þingfestingu ákæru á hendur honum fyrir líkamsárás vegna atviks 6. október árið 2023.
Blaðamaður og ljósmyndari DV hittu Stefán fyrir í héraðsdómi í morgun og ræddi hann við blaðamann, sjá einnig: Stebbi Jak ákærður fyrir líkamsárás – „Ég gerði ekkert af mér“
Stefán skrifaði færslu á Facebook eftir mætingu í héraðsdóm þar sem segist aldrei hafa átt von á að mæta á slíkan stað. Lýsir hann atvikinu og segir meintan brotaþola hafa ráðist á sig og í kjölfarið áreitt Stefán og fólk honum tengt með grófum hætti í tvö ár.
„Kæru vinir
Í dag mætti ég í dómsal til þingsetningar á ákærumáli. Aldrei í lífinu bjóst ég við að mæta á slíkan stað.
Málið varðar að fyrir rúmum tveimur árum var ég staddur í leigubíl ásamt eiginkonu minni og öðru pari. Ég þekkti konuna vel en manninn sama og ekkert.
Án fyrirvara byrjaði maðurinn að ráðast á mig með orðum og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir allra viðstaddra róaðist hann ekki. Hann endaði svo á að ráðast á mig líkamlega.
Maðurinn hefur sem sagt kært mig fyrir líkamsárás og að auki hefur hann áreitt mig og fólk í kring um mig með mjög grófum hætti í yfir tvö ár.
Þetta mál hefur verið mjög erfitt og reynt á marga. Það jákvæða er að nú styttist í endalok þessa erfiða máls sem ég lýsi mig saklausann þeim ásökunum sem á mig eru bornar
Að öðru leiti mun ég ekki tjá mig um þetta mál að sinni.“
Stuðningskveðjum rignir yfir Stefán í athugasemdum frá vinum hans, má þar nefna Stefán Magnússon fyrrum eiganda Eistnaflugs, Birgi Jónsson trommara DIMMU og eiginkonu hans Lísu Ólafsdóttur, Egill Örn Rafnsson trommara og fyrrum liðsmann DIMMU, Kristínu Sif Björgvinsdóttur útvarpskonu á K100 og eiginkonu Stefáns, Yesmine Olsson, útvarpsmennina Felix Bergsson, Heiðar Austmann og Ólaf Pál Gunnarsson, tónlistarfólkið Siggu Beinteins, Hálfdán Árnason, Heimi Eyvindarson, Pétur Ben og Aðalbjörn Tryggvason.
„Ömurlegt Stebbi minn, þú veist að enginn heilvita maður trúir þessum ásökunum. Áfram gakk,“ segir Frosti Logason fjölmiðlamaður.
„Réttlætið sigrar Stebbi minn,“ segir tónlistarkonan Helga Möller.
Eiginkona Stefáns, Kristín Sif Björgvinsdóttir útvarpskona á K100, birti meðfylgjandi mynd af þeim hjónum á Instagram.
View this post on Instagram