
Aron Nökkvi Ólafsson, einn þriggja eigenda hárgreiðslustofunnar Studio 109, Rangárseli 2, Reykjavík, birti á Facebook myndband úr öryggismyndavél sem sýnir tvo menn brjótast inn í hárgreiðslustofuna í nótt.
Þjófarnir komust inn með því að brjóta glerið í útidyrahurðinni og höfðu snöggar hendur. Á myndbandinu sést annar maðurinn raða nokkrum pökkum af sömu vörunni ofan í poka.
„Einn þeirra fór beint í vöruhilluna og tók fimm nýjar rakvélar sem voru í sölu hjá okkur og svo var tölvan tekin,“ segir Aron í samtali við DV.
Hann bætir við að til mannanna hafi sést á tveimur rafmagnshlaupahjólum.
Hann upplýsir að málið sé til rannsóknar hjá lögreglu. „Lögregla tók skýrslu í morgun en ekkert nýtt að frétta þaðan ennþá,“ sagði Aron ennfremur, en DV ræddi við hann í hádeginu.
Hann bætir við að stofan sé opin og í starfsemin í fullum gangi. „Við erum búin að hreinsa stofuna, loka fyrir gatið í hurðinni og byrjuð að klippa aftur.“
Þeir sem hafa upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa annað hvort samband við lögreglu eða Aron Nökkva Ólafsson.
Innbrot hárgreiðslustofu