

Starfsmaður Útlendingastofnunar sem braut gegn lögbundinni þagnarskyldu sinni með því að birta nöfn einstaklinga, sem voru með mál í vinnslu hjá stofnuninni, á Instagram hefur verið rekinn úr starfi og kærður til lögreglu. Jafn framt ritaði starfsmaðurinn með niðrandi hætti um fólkið og stærði sig af því að hafa skrifað ákvarðanir sem snerust um að neita umsækjendum um hæli.
Það var fjölmiðilinn Gímaldið sem greindi fyrst frá málinu skömmu fyrir jól.
Gímaldið greindi einnig fyrst frá afleiðingunum fyrir starfsmanninn en tilkynning um það hefur verið birt á vef Útlendingastofnunar.
Í tilkynningunni segir að 18. desember hafi stofnunin fyrst fengið upplýsingar um alvarlegt brot starfsmanns á lögum um persónuvernd og þagnarskyldu opinberra starfsmanna. Starfsmaðurinn hafi lokið störfum hjá stofnuninni.
Segir enn fremur að frá því málið kom upp hafi verið farið yfir allar ákvarðanir sem viðkomandi starfsmaður hafði aðkomu að á meðan hann starfaði hjá stofnuninni. Þetta hafi verið gert til að ganga úr skugga um að verkferlum sem eigi að tryggja gæði ákvarðana hafi verið fylgt í hvívetna. Á meðal þess sem það feli í sér sé að allar stjórnvaldsákvarðanir stofnunarinnar skuli lesnar yfir og staðfestar af yfirmanni og því komi ávallt fleiri en einn starfsmaður að hverri ákvörðun. Við yfirferð umræddra mála hafi ekkert komið fram sem gefi tilefni til að endurskoða eða taka upp að nýju ákvarðanir sem starfsmaðurinn hafði aðkomu að. Ekkert bendi heldur til þess að viðkomandi hafi áður viðhaft slíka háttsemi og gangi stofnunin út frá því að um einangrað tilvik sé að ræða.
Segir enn fremur að í samvinnu við persónuverndarfulltrúa stofnunarinnar hafi brotið verið tilkynnt sem öryggisbrestur til Persónuverndar og hafi ákvæðum um meðferð slíkra mála verið fylgt til hins ítrasta. Persónuvernd hafi jafnframt hafið frumathugun á öryggi við vinnslu persónuupplýsinga hjá Útlendingastofnun í því skyni að afla upplýsinga og gagna til athugunar á því hvort tilefni sé til að hefja úttekt eða frumkvæðisathugun á vinnslunni.
Í ljósi alvarleika málsins hafi Útlendingastofnun einnig tilkynnt brot starfsmannsins til lögreglu.
Haft er eftir Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar:
„Ég geri þá kröfu að starfsfólk Útlendingastofnunar standi undir þeirri ábyrgð sem fylgir meðhöndlun viðkvæmra persónuupplýsinga. Traustið sem skjólstæðingar okkar sýna okkur byggir á því, og ég vil vera skýr um að brot á trúnaði verða ekki liðin innan stofnunarinnar.“
Segir að lokum að Útlendingastofnun hafi við þetta tilefni brýnt fyrir starfsfólki sínu mikilvægi þess að gæta ítrustu varkárni við meðhöndlun þeirra gagna sem stofnuninni sé treyst fyrir. Stofnunin muni hér eftir sem hingað til leggja áherslu á að upplýsa og fræða starfsfólk sitt um rétta meðferð gagna og þær skyldur sem hvíli á starfsmönnum samkvæmt lögum og reglum.