fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Sigmundur Davíð lenti í vandræðum vegna bíóferðar, þorrablóts og leiks Íslands og Danmerkur

Ritstjórn DV
Föstudaginn 30. janúar 2026 19:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins lenti í vandræðum í kvöld þegar hann tvíbókaði sig óvart. Hann hafði ætlað að kveðja Bíóhöllina við Álfabakka með pomp og prakt og skella sér annað kvöld á gömlu klassísku kvikmyndina Goonies.

Tilraun hans til að verða sér úti um miða fór ekki betur en svo að skyndilega sat hann uppi með fjóra miða á sýningu sem átti að hefjast klukkan 19:30 í kvöld. Voru þá góð ráð dýr, því Sigmundur Davíð ætlaði að sjálfsögðu að horfa á leik Íslands og Danmerkur á EM í handbolta sem hefst á sama tíma og auk þess var hann á leiðinni á þorrablót.

Hann leitaði því á náðir Facebook í von um að finna kannski fjóra einstaklinga sem ekki ætluðu sér að horfa á leikinn og væru tilbúnir að fá miðana að gjöf.

Þessi tilraun hans virðist hafa gengið upp því einn facebook-vinur gaf sig fram í athugasemd og bauðst til að losa Sigmund Davíð við miðana. Formaður Miðflokksins getur því horft á leikinn frá þorrablóti sínu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”