fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Fyrirspurn um stæði fyrir hreyfihamlaða við skólann hafnað

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 30. janúar 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirspurn Myndlistarskólans í Reykjavík um skammtímastæði fyrir hreyfihamlaða nemendur við skólann fékk neitun hjá skipulagsfulltrúa.

Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa á þriðjudag var tekin fyrir fyrirspurn skólans frá 10. október 2025, um setja skammtímastæði fyrir nemendur og aðstandendur skólans fyrir framan lóðina nr. 10. við Rauðarárstíg.

Óskað var eftir afstöðu skipulagsfulltrúa á möguleika þess að sett verði upp bílastæði í borgarlandi fyrir hreyfihamlaða við Rauðarárstíg 10 þar sem skólinn er. Ásamt fyrirspurn voru lagðir inn uppdrættir vegna hugmynda sem sýna 4 sérmerkt stæði vegna ferðaþjónustu fatlaðra.

Í niðurstöðu skipulagsfulltrúa kom fram að bílastæði í borgarlandi eru ekki sérmerkt ákveðnum aðilum nema í undantekningartilfellum, svo sem sérmerkt stæði fyrir hreyfihamlaða (það er á skráningarnúmer ökutækis), bílastæði fyrir ráðherra og sendiráð. Kom fram að innan lóðar hússins eru einnig bílastæði sem eiga að fullnægja þörf þeirra húsa sem eru innan hennar. Því er ekki hægt að verða við því að sérmerkja stæði fyrir skólann eins og fyrirspurnin leggur upp með.

Tekið var fram að unnið er að breytingum við Rauðarárstíg og stendur til að hafa tvö bílastæði fyrir fatlaða í nálægð við Myndlistaskólann. Þau stæði verða ekki sérmerkt en munu þá samnýtast skólanum eins og segir í umsögninni. Niðurstaðan var því að ekki er hægt að verða við ósk um að gera sérmerkt stæði í borgarlandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”