fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Slysavarnafélag Íslands er 98 ára – Sjáðu einstakar myndir úr sögu félagsins

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 11:03

Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag eru 98 ár síðan Slysavarnafélag Íslands var stofnað og er markmið starfseminnar enn hið sama, að koma í veg fyrir slys og bjarga mannslífum og verðmætum.

2. október 1999 sameinuðust Slysavarnafélag Íslands og Landsbjörg – landssamband björgunarsveita í ein slysavarna- og björgunarsamtök; Slysavarnafélagið Landsbjörg.

Í færslu Slysavarnafélagsins Landsbjargar kemur fram að fyrsta björgunarsveitin var stofnuð árið 1918 í Vestmannaeyjum í kjölfar tíðra sjóslysa og mannskaða við strendur Íslands. Síðan þá hafa íslenskar björgunarsveitir staðið vaktina og lagt sitt af mörkum til að tryggja öryggi almennings.

Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg
Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg

„Í dag eru starfræktar fjölmargar björgunarsveitir, slysavarnadeildir og unglingadeildir um allt land sem saman mynda þétt öryggisnet og eru ávallt reiðubúnar að bregðast við þegar á þarf að halda.

Saga félagsins er löng og viðburðarík og ljóst er að félagið væri ekki á þeim stað sem það er í dag án óeigingjarns starfs sjálfboðaliða í nærri heila öld og dyggs stuðnings landsmanna. Takk fyrir okkur og hamingjuóskir til félagsmanna!“

Hér má sjá nokkrar myndir sem félagið deilir í tilefni dagsins, fleiri myndir má sjá í færslu félagsins á Facebook.

Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg
Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg
Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg
Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg
Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“